Úrslitin hnífjöfn: Árni Páll vann með einu atkvæði

Árni Páll Árnason verður áfram for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Eitt atkvæði skildi á milli, atkvæði sem greitt var Önnu Pálu Sverr­is­dóttur. Stefanía Ósk­ars­dóttir stjórn­mála­fræð­ingur greinir for­mannslag­inn í Sam­fylk­ing­unni og mun­inn á fram­bjóð­end­unum tveimur.

Árni Páll Árnason var rétt í þessu end­ur­kjör­inn for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, en það mátti ekki tæpara standa. Aðeins einu atkvæði mun­aði á þeim Árna Páli og Sigríði Ingi­björgu Inga­dóttur.

Árni Páll hlaut 241 atkvæði eða 49,49 pró­sent atkvæða á móti 240 atkvæðum sem féllu Sigríði Ingi­björgu í hlut, eða 49,28 pró­sent atkvæða. 

Þetta eina atkvæði sem skipti sköpum var greitt Önnu Pálu Sverr­is­dóttur. 

„Þetta er sér­kenni­leg nið­ur­staða, en svona er lýð­ræðið,“ sagði Árni Páll þegar nið­ur­staðan lá fyrir. 

Boðar hærri húsaleigubætur

Árni Páll lagði áherslu á hús­næð­is­málin þegar hann setti lands­þingið í dag og sagð­ist boða „rót­tækar breyt­ingar á hús­næð­is­kerf­inu“. Rík­is­stjórnin hefði ekk­ert gert í þeim efnum, en í Reykja­vík væri Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri, byrj­aður að auka fram­boð af leigu­í­búðum. 

En sú upp­bygg­ing mun taka mik­inn tíma. Við getum ekki bara beðið. Ríkið verður að spila með. Við þurfum hækkun húsa­leigu­bóta. Við verðum …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

3
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár