Trúnaðarmenn starfsfólks Eflingar segja hópuppsögnina ranga og ónauðsynlega

Trúnaðar­menn starfs­fólks hjá Eflingu, sem tóku þátt í samráðs­ferli með lögmanni stjórnar Eflingar vegna hópuppsagnar stéttar­félagsins, segjast ekki geta sagt að um samráð hafi verið að ræða. Enginn vilji hafi verið til breytinga né mildunar á hópuppsögn.

Trúnaðar­menn Eflingar og VR, sem hafa undan­farna daga átt fundi með lögmanni stjórnar Eflingar vegna fyrir­hugaðrar hópuppsagnar starfs­manna stéttar­félagsins, segjast telja að ekkert af yfir­lýstum markmiðum stjórnar Eflingar krefjist þess að öllu starfs­fólki stéttar­félagsins verði sagt upp.

Þetta kemur fram í yfir­lýsingu frá trúnaðar­mönnunum, þeim Ölmu Pálma­dóttur og Gabríel Benjamin, sem hafa sent til fjölmiðla formlega bókun þeirra og lögmanns sem tók þátt í samráðs­ferlinu fyrir hönd stjórnar Eflingar.

Þau Alma og Gabríel segjast ekki lengur telja sig bundin trúnaði um það samráðs­ferli sem þau tóku þátt í sem trúnaðar­menn starfs­manna hjá Eflingu, en tilgangur þess samkvæmt lögum er að „forðast hópuppsagnir eða fækka starfs­mönnum sem fyrir þeim verða og draga úr afleiðingum með hjálp félagslegra aðgerða“.

Í yfir­lýsingu þeirra segir að þau sem trúnaðar­menn hafi farið á þessa fundi með „opnum hug“ og að þau hafi reynt „eftir fremsta megni að leita leiða til þess að komast hjá þessum hópuppsögnum eða milda þær.“

„Við gáfum til kynna að við tækjum allar tillögur alvarlega og reyndum að vera samstarfsfús til lausna. Ekkert varð úr því. Við getum ekki sagt að um samráð hafi verið um að ræða í skilningi laga um hópuppsagnir, engin vilji var til breytinga eða mildunar á hópuppsögn heldur einhliða ákvörðun sem er röng, óskynsamleg og með öllu ónauðsynleg. Gefnar voru upp ástæður sem fólust í breytingum á ráðningar­kjörum og til að uppfylla skilyrði varðandi jafn­launavottun. Þessar ástæður eru ekki byggðar á rökum og halda engu vatni,“ segir í yfir­lýsingu þeirra Ölmu og Gabríels.

Lýstu andstöðu við uppsagnirnar

Þau segja að full­yrðingar Sólveigar Önnu Jóns­dóttur formanns Eflingar, um að samkomulag hafi náðst um framkvæmd hópuppsagnar, séu rangar með öllu, en í bókuninni sem þau láta fylgja með segir að trúnaðar­mennirnir lýsi yfir andstöðu við hópuppsögnina og að þau telji ekkert því til fyrir­stöðu að ná yfir­lýstum markmiðum stjórnar með öðrum hætti.

„Þegar ljóst var að ekki væri hægt að koma í veg fyrir eða milda þessar aðgerðir hófst samtal um hvernig mætti standa að þeim og úr því varð bókun. Í þeirri bókun ítrekuðum við andmæli okkar við hópuppsögnina en komumst að samkomu­lagi um fjögur atriði varðandi uppsagnirnar,“ segja þau Alma og Gabríels og bæta því við að þau hefðu, eftir á að hyggja, viljað að hverjum og einum starfs­manni yrði afhent uppsögnin af hendi formanns.

Sólveig Anna greindi fyrr í dag frá þessum fjórum atriðum sem samkomulag náðist um, en þau fela í sér að starfs­menn sem þess óska verði leystir undan vinnu­skyldu síð­asta mánuð upp­sagn­ar­frests, öllum starfs­mönnum verði tryggður að lág­marki 3 mán­aða upp­sagn­ar­frest­ur, einnig þeim sem ekki hafa áunnið sér hann, að Efl­ing muni falla frá rétt­indum og skyldum í til­vikum þar sem starfs­maður óskar að ganga í annað starf áður en upp­sagn­ar­frestur er lið­inn og að starfs­fólki Eflingar verði veitt svig­rúm til að sækj­ast eftir öðrum störfum á upp­sagn­ar­fresti óski það þess.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár