Jafnréttisstofa: Efling verði að útskýra hvernig jafnlaunavottun tengist uppsögnum

Fram­kvæmda­stjóri Jafn­rétt­is­stofu segir að Efling verði „að rök­styðja hvað það er við jafn­launa­vottun sem veldur því að segja þurfi upp öllum ráðn­ing­ar­samn­ingum“. Jafn­rétt­is­stofa hefur aldrei heyrt af því að upp­sögnum sé beitt sem lið í jafn­launa­vottun.

Jafnréttisstofa telur „vandséð að það að öðlast vottun á að launakerfi uppfylli kröfur jafnlaunastaðalsins“ réttlæti þær aðgerðir sem boðaðar hafa verið á skrifstofu Eflingar.
Jafn­rétt­is­stofa telur „vand­séð að það að öðl­ast vottun á að launa­kerfi upp­fylli kröfur jafn­launa­stað­als­ins“ rétt­læti þær aðgerðir sem boð­aðar hafa verið á skrif­stofu Eflingar. Mynd: Pexels

Ekkert fyr­ir­tæki eða stofnun hér­lendis hefur leitað til Jafn­rétt­is­stofu með hug­myndir um að segja upp öllu starfs­fólki og end­ur­ráða á ný til þess að leggja grunn að því að ná jafn­launa­vottun á vinnu­staðnum.

Jafn­rétt­is­stofa myndi ekki mæla með slíkum aðgerðum og telur þær vart rétt­læt­an­legar, segir Katrín Björg Rík­arðs­dóttir fram­kvæmda­stjóri Jafn­rétt­is­stofu í skrif­legu svari til Kjarnans.

Kjarninn beindi þremur spurn­ingum til Jafn­rétt­is­stofu vegna yfir­vof­andi upp­sagna hjá Eflingu, sem hafa sam­kvæmt því sem fram hefur komið í fjöl­miðlum og eftir heim­ildum Kjarnans, auk ann­ars verið settar í sam­hengi við vinnu stétt­ar­fé­lags­ins í því skyni að öðl­ast jafn­launa­vottun.

Nei, nei, nei

Spurn­ing­arnar þrjár, sem Katrín Björg svar­aði, lutu að því hvort eitt­hvað fyr­ir­tæki eða stofnun hefði gripið til við­líka aðgerða og þeirra sem boð­aðar hafa verið hjá Eflingu til þess að fær­ast nær því að upp­fylla jafn­launa­stað­al­inn, hvort eitt­hvað fyr­ir­tæki hefði leitað til Jafn­rétt­is­stofu með slíkar hug­myndir og hvort Jafn­rétt­is­stofa myndi sjálf mæla með upp­sögnum og end­ur­ráðn­ingum sem tóli sem nýta mætti við inn­leið­ingu jafn­launa­stað­als­ins.

„Nei, nei, nei,“ var skrif­legt svar Katrínar Bjargar til Kjarnans við spurn­ing­unum þremur, en stofn­unin sem hún stýrir hefur meðal ann­ars það lög­bundna hlut­verk sjá um fræðslu og upp­lýs­inga­starf­semi á sviði jafn­rétt­is­mála, veita ráð­gjöf og aðstoð á sviði jafn­rétt­is­mála og vinna gegn launa­mis­rétti og annarri mis­munun á vinnu­mark­aði, með sér­stakri áherslu á að vinna gegn launa­mis­rétti á grund­velli kyns.

Spurningin aldrei komið upp

Katrín Björg segir að Efling verði „að rök­styðja hvað það er við jafn­launa­vottun sem veldur því að segja þurfi upp öllum ráðn­ing­ar­samn­ingum“ og bætir því við að frá því að jafn­launa­vottun hófst hafi „þessi spurn­ing aldrei komið upp“.

[adspot]

Hún segir að Jafn­rétt­is­stofa telji auk þess „vand­séð að það að öðl­ast vottun á að launa­kerfi upp­fylli kröfur jafn­launa­stað­als­ins rétt­læti aðgerðir af þessu tagi.“[links]

Jafnlaunavottun einn þáttur sem nefndur hefur verið

Stjórn Efl­ingar sam­þykkti í gær til­lögu um hóp­upp­sögn vegna breyt­inga á ráðn­ing­ar­kjörum allra starfs­manna skrif­stofu félags­ins. Sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarn­ans mið­aði til­lagan að því að taka á ósam­ræmi og úreltum venjum í starfs­kjörum og leggja grunn að jafn­launa­vott­un, sem áður segir.

Einnig verða gerðar breyt­ingar á mönn­un, verka­skipt­ingu og hæfn­is­kröfum starfs­manna. Öllum laun­uðum starfs­mönnum félags­ins verður sagt upp í þessum aðgerðum en þeir eru um 45 til 50 tals­ins, eftir því hvernig störfin eru skil­greind.

Allir starfs­menn­irnir verða beðnir að vinna upp­sagn­ar­frest­inn og allir núver­andi starfs­menn verða hvattir til að sækja aftur um störfin. Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans eru engar und­an­tekn­ingar á þessum fyr­ir­mælum þannig að starfs­manna­hóp­inn verði ekki dreg­inn í dilka. Til stendur að öll störfin verði aug­lýst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár