„Drepið svikarana!“

Þegar hinn tíu ára Pétur var val­inn til keis­ara í Moskvu 1682 varð allt vit­laust. Skytt­urnar gerðu upp­reisn. En var það Soffía Alex­eiévna, systir hins unga keis­ara, sem stóð fyrir æðinu sem nú greip um sig í Kreml?

Skyttur spyrja niður­lútan Ívan hvort hann sé virkilega Ívan en Pétur stendur fjær og lætur sér fátt um finnast. Jóakim patríarki reynir að stilla múginn, en Matveiév stendur bláklæddur til vinstri og býst til að taka til máls. Verkið málaði Nikolai Dmitritév-Orenburgskí á ofanverðri 19. öld.
Skyttur spyrja niður­lútan Ívan hvort hann sé virki­lega Ívan en Pétur stendur fjær og lætur sér fátt um finn­ast. Jóakim patrí­arki reynir að stilla múg­inn, en Matveiév stendur blá­klæddur til vinstri og býst til að taka til máls. Verkið mál­aði Nikolai Dmit­ritév-Oren­burg­skí á ofan­verðri 19. öld.

Þar var komið sögu Soffíu Alex­eiévu, sem ég hóf að segja í síð­ustu Stund, að hún hafði brotið af sér ótrú­lega marga af þeim þungu hlekkjum sem fjötr­uðu konur í Rúss­landi á ofan­verðri 17. öld. Þá var siður að konur í keis­ara­fjöl­skyld­unni í Moskvu voru lok­aðar inni í Kreml­arkast­ala, nán­ast í fang­elsi eða kvenna­búri („terem“), enda voru konur taldar algjörir eft­ir­bátar karl­manna, bæði vits­muna­lega og sið­ferði­lega.

Soffía Alex­eiévna

Meðan Fjodor, bróðir Soffíu, var keis­ari 1676 til 1682 fór hún að gera sig nokkuð gild­andi – enda við­ur­kenndu karl­arnir við hirð­ina, nokkuð nauð­ugir, að hún væri leift­ur­snjöll og gáfuð – en þegar Fjodor dó barn­laus sá systir hans fram á verri daga og jafn­vel að verða lokuð inni í kvenna­búr­inu aftur.

Fatlaður keisari? Má það?

Þannig var að Alexei, faðir hennar (keis­ari 1645-1676), hafði eign­ast tvo syni, auk Fjodors. Ívan hét sonur …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár