Segjast ætla að leigja út Heinaste til namibískra aðila

Samherji vinnur nú að því að gera skipið Heinaste út í Namibíu og er, samkvæmt fyrir­tækinu, nú unnið að því að finna viðeigandi lausnir í samráði við namibísk stjórn­völd.

Björgólfur Jóhannsson og Þorsteinn Már Baldvinsson
Björgólfur Jóhanns­son og Þor­steinn Már Bald­vins­son Mynd: Samherji

Samherji vinnur nú að því að gera Heinaste út í Namibíu og er unnið að því að finna viðeigandi lausnir í samráði við namibísk stjórn­völd. Að minnsta kosti tíma­bundið verður þetta fólgið í leigu á Heinaste til namibískra aðila sem stunda útgerð í landinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samherja sem birtist í dag.

Þá segist fyrir­tækið leggja ríka áherslu á að finna lausnir sem henta namibískum áhafnar­meðlimum skipsins, namibísku samfélagi og minnihluta­eigendum eignarhalds­félags Heinaste.

Arn­grímur Brynj­­ólfs­­son skip­­stjóri á skip­inu Heina­­ste, sem Sam­herji gerði út við strendur Namib­­íu, var dæmdur í gær til að greiða 7,9 millj­ónir króna í sekt eða sæta tólf ára fang­els­is­vist vegna ólög­legra veiða, að því er fram kom í frétt The Namibian Sun. Kröfu ákæru­valds­ins um að fá að leggja hald á fiski­skipið Heinaste sem hann stýrði var vísað frá dómi. Samkvæmt heim­ildum Kjarn­ans hefur kyrr­setn­ingu skipsins verið aflétt.

Samstæðan hefur óverulegra hagsmuna að gæta í landinu

Í tilkynningu Samherja kemur fram að fyrir­tækið hafi um nokkra hríð unnið að því að draga úr starfsemi sinni í Namibíu með það fyrir augum að hætta rekstri í landinu en frá því hefur áður verið greint í fjöl­miðlum.

„Nú er svo komið að samstæðan hefur óverulegra hagsmuna að gæta í landinu miðað við umfang starfseminnar áður. Af þeim þremur skipum sem hafa stundar veiðar í namibískri lögsögu undan­farið ár, Geysir, Heinaste og Saga, er aðeins eitt eftir í Namibíu og er þar um að ræða verksmiðju­togarann Heinaste,“ segir í yfir­lýsingunni.

Björgólfur Jóhannsson, starfandi forstjóri Samherja, segir við tilefnið það vera mjög ánægjulegt að mál vegna skipsins Heinaste og skip­stjóra þess hafi verið leitt til lykta fyrir dómi í Namibíu á miðvikudag. Þetta skapi ný tækifæri í rekstri skipsins og vilji fyrir­tækið að þau verði nýtt í Namibíu.

Fréttir af sjómönnum í óvissu

Fram kom í fjöl­miðlum þann 3. febrúar að Geys­ir, skip í eigu Sam­herja sem verið hefur verið veiðar í Namib­íu, hefði verið siglt frá Namib­íu. The Namibian Sun greindi frá því í Twitt­er-­færslu að skipið hefði yfir­gefið landið og skilið yfir 100 sjó­menn eftir í óvissu. Miðillinn hélt því fram að sjó­menn­irnir hefðu ekki fengið að vita neitt í aðdrag­anda þess að skipið sigldi á brott utan þess að þær upp­lýs­ingar feng­just að það myndi snúa til baka þegar það fengi úthlutað nýjum fisk­veiði­kvóta.

Á föstu­daginn í síðustu viku var greint frá því í miðl­inum New Era að skipið Saga, sem siglir undir merkjum dótt­ur­fé­lags Sam­herja á Kýpur og hefur um ára­bil veitt hrossa­makríl í lög­sögu Namib­íu, hefði fyr­ir­vara­laust siglt frá land­inu. Þá fengu sjó­menn­irnir á Sögu, sem eru um 120 tals­ins, sms-skila­boð um að þeir þyrfti að sækja eigur sínar um borð án tafar vegna þess að skipið væri á leið til Kanarí­eyja í við­gerð.

Samkvæmt Samherja er skipið Saga sem stendur á leið í slipp vegna tímabærs viðhalds og lagfæringa sem hefðu staðið til lengi. Geysir er sem stendur við veiðar í Máritaníu þar sem ekkert af dóttur­fyrirtækjum Samherja fékk úthlutað kvóta fyrir skipið í Namibíu.

Segjast ætla að standa við skuldbindingar sínar

Í yfir­lýsingunni kemur jafnframt fram að áður en Samherja­samstæðan muni alfarið hætta starfsemi í Namibíu muni dóttur­fyrirtæki samstæðunnar í landinu uppfylla allar skyldur gagnvart skip­verjum sem hafa unnið fyrir þessi fyrirtæki. Fulltrúar Samherja hafi fundað með þeim sjómönnum sem eiga í hlut og fulltrúum stéttar­félaga þeirra. Samherji muni leitast við að veita eins mörgum þeirra áfram­haldandi vinnu og mögulegt sé. Þá einkum þeim sem tengjast Heinaste.

„Eins og áður hefur komið fram munu fyrir­tækin sem um ræðir standa við skuld­bindingar sínar gagnvart öllum starfs­mönnum í samræmi við gildandi lög og reglur,“ segir Björgólfur.

„Röngum upplýsingum verið dreift um eðli starfsemi Samherja í landinu“

Að lokum kemur fram hjá Samherja að undan­farið ár hafi fyrir­tækið unnið fullnaðar­sigur fyrir namibískum dómstólum í deilu­málum gagnvart þarlendum samnings­aðilum samstæðunnar.

„Undan­farna mánuði hafa sumir þessara aðila reynt að notfæra sér ásakanir á hendur Samherja í áróðurs­skyni til fram­dráttar sínum málstað. Í tengslum við slíka herferð hefur röngum upplýsingum verið dreift um eðli starfsemi Samherja í landinu. Samherja­samstæðan hyggst ekki leiða ágreining um slíkt til lykta á opinberum vettvangi og mun gæta hagsmuna sinna vegna samnings­bundinna atriða eftir þar til bærum leiðum. Það er mat Samherja að samstæðan hafi staðið við, eða sé við það að standa við, allar skuld­bindingar sínar í Namibíu.

Allar ákvarðanir, sem tengjast því að Samherji er að hætta rekstri í Namibíu, verða teknar í nánu samráði við þar til bær stjórn­völd. Greint verður opinber­lega frá framvindu málsins jafnóðum,“ segir í yfir­lýsingunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hluthafar Samherja taka út milljarð í arð eftir uppskiptingu félagsins

Verulegar breytingar voru gerðar á uppbyggingu útgerðar­risans Samherja í fyrra þegar fjár­festingar­starfsemin var aðskilin frá útgerðar­rekstri með stofnun eignarhalds­félagsins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eigendur Samherja ætli sér einnig að færa útgerðar­félagið inn í eignarhalds­félagið Látra­fjöll en skattalegar ástæður geta legið þar að baki.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár