Annað skip Samherja yfirgefur Namibíu – 100 sjómenn í óvissu

Spill­ing­ar­lög­reglan í Namibíu hefur ráð­lagt stjórn­völdum þar að leyfa skipum Samherja ekki að fara frá land­inu nema að lög­reglan verði látin vita. Þrátt fyrir það hafa tvö af þremur skipum Samherja í Namibíu farið á síð­ustu dögum. Það þriðja er kyrr­sett.

Sjómenn á Geysi leita upplýsinga um stöðu sína eftir að skipinu var siglt frá Namibíu í gærkvöldi.
Sjómenn á Geysi leita upp­lýs­inga um stöðu sína eftir að skip­inu var siglt frá Namibíu í gær­kvöldi. Mynd: Twitter-síða Namibían Sun

Geysir, skip í eigu Samherja sem verið hefur verið veiðar í Namibíu, hefur verið siglt frá Namibíu, sam­kvæmt frétta­miðl­inum Namibian Sun. Hann segir í Twitter-færslu að skipið hafi yfir­gefið landið í gær­kvöldi og skilið yfir 100 sjó­menn eftir í óvissu. Namibian Sun segir að sjó­menn­irnir hafi ekki fengið að vita neitt í aðdrag­anda þess að skipið sigldi á brott utan þess að þær upp­lýs­ingar feng­ust að það myndi snúa til baka þegar það fengi úthlutað nýjum fisk­veiði­kvóta.

Þetta er í annað sinn á örfáum dögum sem fregnir ber­ast frá Namibíu þess efnis að skip í eigu Samherja séu að hverfa frá land­inu. Á föstu­dag var greint frá því í miðl­inum New Era að skipið Saga, sem siglir undir merkjum dótt­ur­fé­lags Samherja á Kýpur og hefur um ára­bil veitt hrossa­makríl í lög­sögu Namibíu, hefði fyr­ir­vara­laust siglt frá land­inu. Þá fengu sjó­menn­irnir á Sögu, sem eru um 120 tals­ins, sms-skila­boð um að þeir þyrfti að sækja eigur sínar um borð án tafar vegna þess að skipið væri á leið til Kanarí­eyja í við­gerð. Einn sjó­mann­anna sagði við New Era að van­inn væri sá að um 15 skip­verjar færu alltaf með Sögu þegar það færi í við­gerð. Annar sagð­ist hafa fengið þau svör hjá útgerð­inni að skipið myndi ekki snúa aftur næstu sex mán­uði.

Því eru tvö af þremur skipum Samherja í Namibíu farin þaðan. Það þriðja, verk­smiðju­tog­ar­inn Heinaste, er kyrr­settur í land­inu, en Samherji hefur verið að reyna að selja það til þriðja aðila á verði sem namibísk yfir­völd telja langt undir mark­aðsvirði.

[adspot]Í frétt sem New Era birti á vef sínum í morgun kemur fram að namibíska spill­ing­ar­lög­reglan ACC hafi ráð­lagt stjórn­völdum í land­inu að heim­ila ekki fleiri skipum sem tengj­ast Samherja úr landi nema að lög­reglu­yf­ir­völd verði látin vita fyrst.

Samherji ætlar að draga úr starfsemi sinni í Namibíu

Samherji greindi frá því í yfir­lýs­ingu sem birt­ist á heima­síðu fyr­ir­tæk­is­ins um miðjan jan­úar að það væri að draga úr starf­­semi sinni í Namibíu um þessar mundir með það að mark­miði að hætta alfarið rekstri í land­inu. Það væri hins vegar ljóst að það myndi taka ein­hvern tíma.

Síðan þá hafa hlut­irnir gerst hratt. Nokkrum dögum eftir að sú til­kynn­ing var send út var greint frá því að namibíska rík­is­út­gerðin Fishcor, sem stýrt var af mönnum sem sitja í fang­elsi fyrir að hafa þegið mútur frá Sam­herja, hefði ekki átt fyrir launum fyrir des­em­ber og jan­ú­ar­mánuð. Til að bregð­ast við þeirri stöðu var 25 þús­und tonna kvóti af hrossa­mak­ríl færður til útgerð­ar­innar til að úthluta gegn greiðslu. Alls vinna meira en þús­und manns hjá Fischor, sem gerir útgerð­ina að næsta stærsta atvinnu­rek­anda í hafn­ar­bænum Lüderitz í Namib­íu.

Fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Namib­íu, Bern­hard Esau, úthlut­aði alls um 360 þús­und tonnum af hrossa­mak­ríl­kvóta til Fishcor frá árinu 2014 og fram á síð­asta ár. Hluti þess kvóta var seldur til Sam­herja og grunur leikur á að íslenski sjáv­ar­út­vegs­ris­inn hafi greitt mútur til að fá þann kvóta á lægra verði en eðli­legt hefði ver­ið. Þær mútu­greiðslur fóru meðal ann­ars til fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­manns Fishcor, James Hatuikulipi, áður­nefnds Esau og aðila þeim tengd­um.

The Namibian greindi frá því 20. jan­úar að inn­an­hús­menn í sjáv­ar­út­vegi telji að Fishcor ætli sér að nota togar­ann Heinaste, sem var kyrr­settur af namibískum yfir­völdum í fyrra, til að veiða hinn nýút­hlut­aða kvóta. Heinaste er að mestu í eigu Sam­herja. Bennet Kangumu, stjórn­ar­for­maður Fishcor, vildi þó ekki stað­festa þetta í sam­tali við blað­ið.

Telja að Sam­herji sé að reyna að selja Heinaste á hrakvirði

Verk­smiðju­tog­ar­inn Heinaste er í eigu namibísk félags sem íslenska sjá­v­­­ar­út­­­vegs­­fyr­ir­tækið Sam­herji á stóran hlut í í gegnum dótt­ur­fé­lag sitt Esju Holding, en hann var kyrr­­settur af dóm­­ara að kröfu yfir­­­valda í Namibíu í nóv­em­ber í fyrra. Ástæðan fyrir kyrr­setn­ing­unni var sögð ætluð brot vegna veiða tog­ar­ans á svæði sem átti að vera lok­að. Arn­grímur Brynj­ólfs­son skip­stjóri á skip­inu Heina­ste, hefur ját­aði fyrir helgi sök vegna ásak­ana um ólög­legar veið­ar. Dómur verður kveð­inn upp í máli hans, á mið­viku­dag.

Aðrir eig­endur eign­ar­halds­fé­lags Heinaste eru namibísk félög, meðal ann­ars Arctic Nam Invest­ments. Saman eiga namibísku félögin 42 pró­sent í félag­inu en eina eign þess er áður­nefndur tog­ari, Heinaste.

New Era greindi frá 20. jan­úar að minni­hluta­eig­endur í Esju Holding hefðu ásakað Sam­herja um sið­lausa hegðun með því að reyna að selja Heinaste á hrakvirði til ann­ars félags. Í miðl­inum er haft eftir Vigrilio De Sousa, stjórn­ar­for­manni Arctic Nam Invest­ments, að Sam­herji sé að reyna að selja sjálfum sér Heinaste á 19 millj­ónir Banda­ríkj­andala með við­skiptafléttu sem inni­heldur einnig rúss­neskt fyr­ir­tæki. Skipið var keypt á 28 millj­ónir Banda­ríkja­dala fyrir tveimur árum síðan og því er verð­mið­inn nú um þriðj­ungi lægri en hann var þá.

De Sousa sagði enn fremur að Sam­herji hafi fjar­lægt alla namibíska stjórn­endur út úr stjórn félags­ins sem á Heinaste. Hann grunar að þetta sé gert til þess að auð­velda enn frekar sölu tog­ar­ans risa­vaxna á hrakvirð­i.

Þróa kerfi til að taka á spill­ingu

Sam­herji til­kynnti um miðjan jan­úar að fyr­ir­tækið ætli að þróa og inn­­­leiða heild­rænt stjórn­­un­­ar- og reglu­vörslu­­kerfi sem bygg­ist á áhætt­u­­skipu­lagi fyr­ir­tæk­is­ins, meðal ann­­ars með áherslu á spill­ingu, efna­hags­­legar refsi­að­­gerðir og pen­inga­þvætti.

Í til­kynn­ingu vegna þessa kom fram að stefnt sé að því að ljúka inn­­­leið­ingu kerf­is­ins síðar á þessu ári og að ákvörðun um inn­­­leið­ingu kerf­is­ins hafi verið tekin á „grund­velli reynslu af starf­­semi fyr­ir­tæk­is­ins í Namib­­íu.“

Sam­herji sagð­ist enn fremur vera að draga úr starf­­semi sinni í Namibíu um þessar mundir með það að mark­miði að hætta alfarið rekstri í land­inu. Það væri hins vegar ljóst að það muni taka ein­hvern tíma. „Allar ákvarð­­anir vegna starf­­sem­innar í Namibíu verða teknar í nánu sam­ráði við þar til bær stjórn­­völd og í sam­ræmi við gild­andi lög og regl­­ur,“ sagði í frétta­til­kynn­ing­unni.

[adspot]De Sousa segir við New Era í dag að að það sé gott að Sam­herji ætli að hætta starf­semi í Namibíu eins og fyr­ir­tækið hefur boðað en að það verði að vera gert á for­sendum Namib­íu­manna.

Ljóst er að til­raunir Sam­herja til að selja Heinaste eru ekki gerðar í nánu sam­ráði, eða í þökk, stjórn­valda í Namib­íu. Sama virð­ist vera uppi á ten­ingnum varð­andi hin tvö skipin sem Samherji hefur not­ast við í Namibíu.

Þegar búið að hand­taka og ákæra

Sam­herji hefur verið í miklu brim­­róti und­an­farna mán­uði eftir umfjöllun Kveiks, Stund­­­ar­inn­­­ar, Al Jazeera og Wikileaks um mút­­u­greiðsl­­­ur, meint pen­inga­þvætti og skatt­snið­­­göngu Sam­herja, sem byggði að mestu á tug­­­þús­undum gagna og upp­­­­­ljóstrun Jóhann­esar Stef­áns­­­son­­­ar, fyrr­ver­andi starfs­­­manns Sam­herja í Namib­­­íu.

[links]Þegar er búið að hand­­­taka og ákæra áður­nefnda Bern­hard Esau, fyrr­ver­andi sjá­v­­­­­­­ar­út­­­­­­­­­­­vegs­ráð­herra Namib­­­­­­íu, James Hatuikulipi, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Fishcor, Sacky Shang­hala, fyrr­ver­andi dóms­­­­­­mála­ráð­herra Namib­­­­­­íu, þrjá aðra menn fyrir að hafa þegið 103,6 millj­­­­­­ónir namibískra doll­­­­­­ara, jafn­­­­­­virði 860 millj­­­­­­óna íslenskra króna, í greiðslur fyrir að tryggja félögum tengdum Sam­herja eft­ir­­­­­­sóttan kvóta í land­in­u.

Auk Shang­hala, Esau og James Hatuikulipi er um að ræða Tamson 'Fitty' Hatuikulipi, tengda­­­­­­son­ur Esau og frændi James, Ricardo Gustavo, sam­­­­­­starfs­­­­­­maður hans og Pius Mwatelulo, sem einnig teng­ist Hatuikulipi ­fjöl­­­­­­skyld­u­­­­­­bönd­um, ákærð­­­­­ir.

Mál Sam­herja er til rann­­­sóknar í Namib­­­íu, á Íslandi og í Nor­egi. Þá hafa eignir verið frystar í Angóla vegna máls­ins og þar á sér einnig stað saka­­­mála­rann­­­sókn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.

16 mín. lestur

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár