Ríkisútgerðin í Namibíu á ekki fyrir launum rúmlega þúsund starfsmanna

Fischor, rík­is­út­gerðin í Namibíu, þurfti að fá við­bót­ar­kvóta frá rík­inu til að geta átt fyrir launum. Fiskinn á mögu­lega að veiða á Heinaste, verk­smiðju­tog­ara sem Samherji er ásak­aður um að vera að reyna að selja sjálfum sér á hrakvirði.

Togarinn Heinaste.
Togarinn Heinaste. Mynd: MarineTraffic.com

Namibíska rík­is­út­gerðin Fishcor, sem stýrt var af mönnum sem sitja í fang­elsi fyrir að hafa þegið mútur frá Samherja, átti ekki fyrir launum um síð­ustu mán­að­ar­mót. Fishcor á heldur ekki fjár­magn til að greiða laun fyrir jan­ú­ar­mánuð.

Til að bregð­ast við þeirri stöðu var 25 þús­und tonna kvóti af hrossa­makríl færður til útgerð­ar­innar til að úthluta gegn greiðslu. Alls vinna meira en þús­und manns hjá Fischor, sem gerir útgerð­ina að næsta stærsta atvinnu­rek­anda í hafn­ar­bænum Lüderitz í Namibíu.

[links]Fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Namibíu, Bernhard Esau, úthlut­aði alls um 360 þús­und tonnum af hrossa­makríl­kvóta til Fishcor frá árinu 2014 og fram á síð­asta ár. Hluti þess kvóta var seldur til Samherja og grunur leikur á að íslenski sjáv­ar­út­vegs­ris­inn hafi greitt mútur til að fá þann kvóta á lægra verði en eðli­legt hefði verið. Þær mútu­greiðslur fóru meðal ann­ars til fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­manns Fishcor, James Hatuikulipi, áður­nefnds Esau og aðila þeim tengdum.

The Namibian greinir frá því að inn­an­hús­menn í sjáv­ar­út­vegi telji að Fishcor ætli sér að nota togar­ann Heinaste, sem var kyrr­settur af namibískum yfir­völdum í fyrra, til að veiða hinn nýút­hlut­aða kvóta. Heinaste er að mestu í eigu Samherja. Bennet Kangumu, stjórn­ar­for­maður Fishcor, vildi þó ekki stað­festa þetta í sam­tali við blaðið.

Telja að Samherji sé að reyna að selja Heinaste á hrakvirði

Verk­smiðju­tog­ar­inn Heinaste er í eigu namibísk félags sem íslenska sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækið Sam­herji á stóran hlut í í gegnum dótt­ur­fé­lag sitt Esju Holding, en hann var kyrr­settur af dóm­ara að kröfu yfir­valda í Namibíu í nóv­em­ber í fyrra. Ástæðan fyrir kyrr­setn­ing­unni var sögð ætluð brot vegna veiða tog­ar­ans á svæði sem átti að vera lokað.

Aðrir eig­endur eign­ar­halds­fé­lags Heinaste eru namibísk félög, meðal ann­ars Arctic Nam Invest­ments. Saman eiga namibísku félögin 42 pró­sent í félag­inu en eina eign þess er áður­nefndur tog­ari, Heinaste.

[adspot]Vef­mið­ill­inn New Era greindi frá því í morgun að minni­hluta­eig­endur í Esju Holding hefðu ásakað Samherja um sið­lausa hegðun með því að reyna að selja Heinaste á hrakvirði til ann­ars félags. Í miðl­inum er haft eftir Vigrilio De Sousa, stjórn­ar­for­manni Arctic Nam Invest­ments, að Samherji sé að reyna að selja sjálfum sér Heinaste á 19 millj­ónir Banda­ríkj­andala með við­skiptafléttu sem inni­heldur einnig rúss­neskt fyr­ir­tæki. Skipið var keypt á 28 millj­ónir Banda­ríkja­dala fyrir tveimur árum síðan og því er verð­mið­inn nú um þriðj­ungi lægri en hann var þá. De Sousa segir enn fremur að Samherji hafi fjar­lægt alla namibíska stjórn­endur út úr stjórn félags­ins sem á Heinaste. Hann grunar að þetta sé gert til þess að auð­velda enn frekar sölu tog­ar­ans risa­vaxna á hrakvirði.

Þróa kerfi til að taka á spillingu

Sam­herji til­kynnti á föstu­dag að fyr­ir­tækið ætli að þróa og inn­leiða heild­rænt stjórn­un­ar- og reglu­vörslu­kerfi sem bygg­ist á áhættu­skipu­lagi fyr­ir­tæk­is­ins, meðal ann­ars með áherslu á spill­ingu, efna­hags­legar refsi­að­gerðir og pen­inga­þvætti.

Í til­kynn­ingu vegna þessa kom fram að stefnt sé að því að ljúka inn­leið­ingu kerf­is­ins síðar á þessu ári og að ákvörðun um inn­leið­ingu kerf­is­ins hafi verið tekin á „grund­velli reynslu af starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins í Namib­íu.“

Sam­herji sagð­ist enn fremur vera að draga úr starf­semi sinni í Namibíu um þessar mundir með það að mark­miði að hætta alfarið rekstri í land­inu. Það væri hins vegar ljóst að það muni taka ein­hvern tíma. „Allar ákvarð­anir vegna starf­sem­innar í Namibíu verða teknar í nánu sam­ráði við þar til bær stjórn­völd og í sam­ræmi við gild­andi lög og regl­ur,“ sagði í frétta­til­kynn­ing­unni.

[adspot]De Sousa segir við New Era í dag að að það sé gott að Samherji ætli að hætta starf­semi í Namibíu eins og fyr­ir­tækið hefur boðað en að það verði að vera gert á for­sendum Namib­íu­manna.

Ljóst er að til­raunir Samherja til að selja Heinaste eru ekki gerðar í nánu sam­ráði, eða í þökk, stjórn­valda í Namibíu.

Þegar búið að handtaka og ákæra

Sam­herji hefur verið í miklu brim­róti und­an­farna mán­uði eftir umfjöllun Kveiks, Stund­­ar­inn­­ar, Al Jazeera og Wikileaks um mút­u­greiðsl­­ur, meint pen­inga­þvætti og skatt­snið­­göngu Sam­herja, sem byggði að mestu á tug­­þús­undum gagna og upp­­­ljóstrun Jóhann­esar Stef­áns­­son­­ar, fyrr­ver­andi starfs­­manns Sam­herja í Namib­­íu.

Þegar er búið að hand­­taka og ákæra áður­nefnda Bern­hard Esau, fyrr­ver­andi sjá­v­­­­­­ar­út­­­­­­­­­vegs­ráð­herra Namib­­­­­íu, James Hatuikulipi, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Fishcor, Sacky Shang­hala, fyrr­ver­andi dóms­­­­­mála­ráð­herra Namib­­­­­íu, þrjá aðra menn fyrir að hafa þegið 103,6 millj­­­­­ónir namibískra doll­­­­­ara, jafn­­­­­virði 860 millj­­­­­óna íslenskra króna, í greiðslur fyrir að tryggja félögum tengdum Sam­herja eft­ir­­­­­sóttan kvóta í land­in­u.

Auk Shang­hala, Esau og James Hatuikulipi er um að ræða Tamson 'Fitty' Hatuikulipi, tengda­­­­­son­ur Esau og frændi James, Ricardo Gustavo, sam­­­­­starfs­­­­­maður hans og Pius Mwatelulo, sem einnig teng­ist Hatuikulipi ­fjöl­­­­­skyld­u­­­­­bönd­um, ákærð­­­­ir.

Mál Sam­herja er til rann­­sóknar í Namib­­íu, á Íslandi og í Nor­egi. Þá hafa eignir verið frystar í Angóla vegna máls­ins og þar á sér einnig stað saka­­mála­rann­­sókn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár