Samherji ætlar að þróa og innleiða heildrænt stjórnunar- og regluvörslukerfi sem byggist á áhættuskipulagi fyrirtækisins, meðal annars með áherslu á spillingu, efnahagslegar refsiaðgerðir og peningaþvætti. Þetta segir Björgólfur Jóhannsson starfandi forstjóri Samherja, í fréttatilkynningu.
Þar kemur fram að stefnt sé að því að ljúka innleiðingu kerfisins síðar á þessu ári og að ákvörðun um innleiðingu kerfisins hafi verið tekin á „grundvelli reynslu af starfsemi fyrirtækisins í Namibíu.“
Samherji segist vera að draga úr starfsemi sinni í Namibíu um þessar mundir með það að markmiði að hætta alfarið rekstri í landinu. Það sé hins vegar ljóst að það muni taka einhvern tíma. „Allar ákvarðanir vegna starfseminnar í Namibíu verða teknar í nánu samráði við þar til bær stjórnvöld og í samræmi við gildandi lög og reglur,“ segir í fréttatilkynningunni.
Þar er einnig haft eftir Björgólfi að kerfið muni „gegna lykilhlutverki í nýrri áætlun þar sem við munum krefjast þess að allir starfsmenn taki virkan þátt í ferli til að endurmeta gildi okkar, menningu og starfsvenjur. Við munum síðan innleiða verkferla fyrir áhættumat og siðareglur í samræmi við kerfið.“
Segir að tekist hafi að verja öll viðskiptasambönd
Samherji hefur verið í miklu brimróti undanfarna mánuði eftir umfjöllun Kveiks, Stundarinnar, Al Jazeera og Wikileaks um mútugreiðslur, meint peningaþvætti og skattsniðgöngu Samherja, sem byggði að mestu á tugþúsundum gagna og uppljóstrun Jóhannesar Stefánssonar, fyrrverandi starfsmanns Samherja í Namibíu.
[adspot]Þegar er búið að handtaka og ákæra Bernhard Esau, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra Namibíu, Sacky Shanghala, fyrrverandi dómsmálaráðherra Namibíu, og fjóra aðra menn fyrir að hafa þegið 103,6 milljónir namibískra dollara, jafnvirði 860 milljóna íslenskra króna, í greiðslur fyrir að tryggja félögum tengdum Samherja eftirsóttan kvóta í landinu. Auk Shanghala og Esau voru James Hatuikulipi, sem hætti sem stjórnarformaður namibísku ríkisútgerðarinnar Fishcor nýverið, Tamson 'Fitty' Hatuikulipi, tengdasonur Esau, Ricardo Gustavo, samstarfsmaður hans og Pius Mwatelulo, sem einnig tengist Hatuikulipi fjölskylduböndum, ákærðir.
Mál Samherja er til rannsóknar í Namibíu, á Íslandi og í Noregi. Þá hafa eignir verið frystar í Angóla vegna málsins og þar á sér einnig stað sakamálarannsókn.
Í fréttatilkynningunni sem birt er á vef Samherja í dag segir Björgólfur að þrátt fyrir alvarlegar ásakanir á hendur félaginu í fjölmiðlum hafi tekist að verja öll sambönd við viðskiptavini og samstarfsaðila þess, bæði hér innanlands og erlendis. Samherji hafi náð að þjónusta alla viðskiptavini sína með sama hætti og félagið hafi gert í gegnum tíðina.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir