Heimilt að veita Þorlákshöfn ríkisstyrk, samkvæmt mati Vegagerðarinnar

Þrátt fyrir að vörugjöld af bílum og tækjum í Þorláks­höfn séu einungis 43 prósent af því sem þau eru hjá Faxa­flóahöfnum telur Vega­gerðin það ekki raska samkeppni né koma í veg fyrir ríkis­styrki til uppbyggingu hafnarinnar í Þorláks­höfn.

Unnið er að lengingu Suðurvarargarðs við Þorlákshöfn þessa dagana.
Unnið er að leng­ingu Suð­ur­var­ar­garðs við Þor­láks­höfn þessa dag­ana. Mynd: Vegagerðin

Umfangs­miklar framkvæmdir munu standa yfir næstu misserin við stækkun hafnarinnar í Þorláks­höfn. Heildar­kostnaður við framkvæmdirnar sem nú eru í gangi eða fyrir­hugaðar er áætlaður alls 5 milljarðar króna og mun ríkið standa straum af kostnaði að stórum hluta.

Spurningum hefur hins vegar verið varpað fram um hvort réttlætanlegt sé að ríkið taki þátt í að greiða hluta framkvæmda­kostnaðarins við stækkun Þorláks­hafnar. Páll Hermannsson, hagfræðingur og sérfræðingur í flutningum, skrifaði grein í Kjarnann í fyrra þar sem hann færði rök fyrir því að vafasamt væri, lögum og reglu­gerðum samkvæmt, að setja svo mikið sem fimmeyring af ríkisfé í uppbyggingu hafnarinnar í Þorláks­höfn þar sem höfnin væri ekki að fullnýta tekju­möguleika sína.

Hafnir skuli fullnýta gjaldskrárstofna til að fá ríkisstyrk

Í reglugerð um hafnamál er fjallað um þau skilyrði sem hafnir þurfa að uppfylla til þess að fá ríkis­styrk til hafnar­framkvæmda. Þar segir að viðkomandi hafnar­sjóður skuli fullnýta gjaldskrár­stofna sína og er yfir­völdum samkvæmt reglu­gerðinni skylt að bera gjaldskrá hafnarinnar saman við gjaldskrár óstyrktra hafna og meta áhrif langtíma­samninga við notendur.

„Ef í ljós kemur að tekjur hafnarinnar eru hlutfalls­lega minni en hjá samanburðar­höfnunum eða raska samkeppnis­stöðu við aðrar hafnir eru skilyrði ríki­styrks ekki uppfyllt,“ segir í reglu­gerðinni.

Fyrirspurn gleymdist hjá ráðuneyti (og blaðamanni) í heilt ár

Kjarninn óskaði eftir svörum um hvort mat á þessu hefði verið framkvæmt frá innviða­ráðuneytinu, sem þá hét reyndar samgöngu- og sveitar­stjórnar­ráðuneytið, í ágúst í fyrra og ítrekaði fyrir­spurnina svo í aftur í nóvember síðastliðnum. Fyrir­spurnin féll hins vegar á milli skips og bryggju hjá ráðuneytinu – og blaða­maður ýtti ekki á eftir svari fyrr en seint og síðar meir. Svar fékkst svo undir lok nýliðins ágúst­mánaðar.

Gjaldskrá Þorlákshafnar raski ekki samkeppni

Í svarinu sem barst segir að það sé Vega­gerðin sem sjái um þátt ríkisins við framkvæmd hafnalaga og hafi eftirlit með framkvæmd þeirra. Fram kemur að mat af þessu tagi hafi verið framkvæmt og að niður­staða Vega­gerðarinnar hafi verið sú að „gjaldskrá Þorláks­hafnar raskaði ekki samkeppni“.

„Við skoðun á því hvort Þorláks­höfn uppfyllti skilyrði fyrir ríkis­styrk, lagði Vega­gerðin mat á það hvort gjaldskrá hafnarinnar væri hlutfalls­lega lægri en samanburðar­hafna eða væri til þess fallin að raska samkeppni. Stofnunin gerði samanburð á Þorláks­höfn og höfnum sem hugsanlega væru í samkeppni við höfnina eða með sambærilegan rekstrar­grundvöll. Það var niður­staða Vega­gerðarinnar að gjaldskrá Þorláks­hafnar raskaði ekki samkeppni,“ segir í svarinu frá innviða­ráðuneytinu, en saman­burðurinn byggði á opinberum gjaldskrám hafnanna.

Í svarinu er nefnt að vörugjöld af sjávar­fangi séu mjög stór þáttur í tekjum Þorláks­hafnar. Í saman­burðinum hefði komið fram að munur á vöru­gjöldum fyrir sjávar­fang væri mjög lítill og því væri sá þáttur ekki til þess fallinn að raska samkeppni.

Vörugjöld fyrir bifreiðar einungis 43 prósent af gjöldum Faxaflóahafna

Í saman­burðinum kom hins vegar einnig fram „að gjöld fyrir bifreiðar og vélar væru lægri í Þorláks­höfn en hjá Faxa­flóahöfnum“ en ekki var tiltekið í svari ráðuneytisins hversu mikið lægri gjöldin eru.

Samkvæmt vöru­gjaldskrám hafnanna tveggja eru greiddar 1.970 kr. í vörugjöld af þessum vörum fyrir hvert tonn hjá Faxa­flóahöfnum en 849 krónur í Þorláks­höfn, sem þýðir að gjaldið í þessum flokki í Þorláks­höfn var einungis 43 prósent af samsvar­andi gjaldi Faxa­flóahafna.

Þetta þykir þó ekki til þess fallið að raska samkeppni, en þess var getið í svari ráðuneytisins, sem unnið var í samstarfi við sérfræðinga Vega­gerðarinnar, að flutningur bifreiða og véla um Þorláks­höfn væri einungis lítill hluti af flutningum um höfnina, eða um 20 prósent.

„Það var því ekki talið hafa áhrif á samkeppni. Flutningur bifreiða og véla fer eftir sem áður að stærstum hluta um Faxa­flóahafnir,“ segir í svari ráðuneytisins, en á undan­förnum árum hefur hlutur Þorláks­hafnar í þessum flutningum aukist mjög eftir að flutninga­fyrirtækið Smyril Line hóf siglingar ekjuskipa þangað frá megin­landi Evrópu.

Meðalgjöld hærri í Þorlákshöfn, ef ekki væri fyrir allan vikurinn

Í svari ráðuneytisins segir að við nánari samanburð Þorláks­hafnar við Faxa­flóahafnir komi í ljós að meðal­tekjur á tonn í Þorláks­höfn séu 374,4 krónur en 399 krónur hjá Faxa­flóahöfnum.

„Skýringin er sú að mikið magn af vikri fer um Þorláks­höfn en hann fellur í lægsta gjald­flokkinn. Væri litið fram hjá flutningi á vikri yrðu meðal­gjöld á tonn í Þorláks­höfn hærri en hjá Faxa­flóahöfnum,“ segir í svari ráðuneytisins.

Þar segir einnig það séu engir afslættir gefnir af vöru­gjöldum í Þorláks­höfn og að ekki séu gefnir afslættir að skipa­gjöldum, nema þegar útgerðir sjái sjálfar um tiltekna verkþætti.

Fjallað var um þær umfangs­miklu framkvæmdir sem nú standa yfir við höfnina í Þorláks­höfn í nýjasta tölublaði Framkvæmda­frétta Vega­gerðarinnar. Þar var haft eftir Fannari Gíslasyni forstöumanni hafna­deildar Vega­gerðarinnar að breytingarnar sem væri verið að gera á höfninni væru afar nauðsynlegar og að þær myndu að öllum líkindum breyta rekstrar­afkomu hafnarinnar til muna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár