Cristiano Ronaldo ákærður fyrir stórfelld skattsvik

Lionel Messi hefur nú þegar verið dæmdur fyrir skattsvik. Ákæran í hans máli var vegna mun umfangs­minni brota heldur en ákæran á hendur Cristiano Ronaldo.

Christiano Ronaldo er sagður hafa svikið tæplega 15 milljónir evra undan skatti.
Christiano Ronaldo er sagður hafa svikið tæp­lega 15 millj­ónir evra undan skatti. Mynd: EPA

Cristiano Ronaldo, leikmaður Real Madrid og fyrirliði portúgalska lands­liðsins, hefur verið ákærður fyrir stófelld skattsvik, en í ákærunni er Ronaldo sakaður um að hafa svikið 14,8 milljónir evra undan skatti, eða sem nemur um 1,7 milljarða króna, miðað við núverandi gengi evru gagnvart krónu.

Financial Times greindi frá málinu í dag, en Ronaldo var birt ákæran í dag en hann hafnar því alfarið að hafa brotið gegn lögum, að því er fram kemur á vef Marca.

Ekki eru nema þrjár vikur síðan Hæstiréttur Spánar staðfesti 21 mánaða fangelsis dóm yfir Lionel Messi, leikmanni Barcelona og argentíska lands­liðsins, en honum var auk þess gert að greiða tvær milljónir evra í bætur. Ákæran í því máli var vegna svika upp á 4,1 milljón evra á árunum 2007 til 2009. Messi neitaði alfarið sök í málinu, en faðir hans, sem sá um samnings­gerðina fyrir hans hönd, hlaut fimmtán mánaða fangelsisdóm vegna málsins.

Í máli Ronaldo er ákært vegna brota á árunum 2011 til og með 2014, en spænsk yfirvöld telja að tekjur vegna ímyndar hans, sem fóru í gegnum félög í þekktu skatta­skjóli á bresku jómfrúar­eyjunum, hafi verið mun hærri en han hafi gefið upp, eða 43 milljónir evra, en ekki 11,5 milljónir evra eins og gefið hafi verið upp.

Ronaldo og Messi hafa verið bestu knattspyrnu­menn heims undan­farinn áratug, og skipst á að fá viðurkenningar frá FIFA sem knattspyrnu­menn ársins. Ronaldo heldur nú á þeim titli en hann varð í fyrra Evrópu­meistari með Portúgal og hefur sigrað Meistara­deild Evrópu með Real Madrid undan­farin tvö ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár