Fáheyrð ákæra vegna hálfs gramms af kannabis

Maður á Akureyri sætir ákæru fyrir vörslu hálfs gramms af kannabis. Saksóknari segir undan­tekningu ef ákært er fyrir svo litla skammta til eigin nota. Í þessu tilfelli mun maðurinn hafa neitað að leysa málið með sektar­greiðslu sem áætla má að nemi 54 þúsund krónum.

Kannabis
Kannabis Maður á Akureyri sem var ákærður fyrir vörslu kanna­bis­efna mun hafa neitað að leysa málið með sekt­ar­greiðslu. Mynd: Shutterstock

Litlir neyslu­skammtar af fíkni­efnum og sektir þeirra vegna koma ekki fram á saka­vottorðum fólks. Undan­tekning er að ákært sé í slíkum málum, samkvæmt upplýsingum frá embætti Ríkis­saksóknara og lögreglu­stjórans á Norður­landi eystra.

Mannlíf greindi frá því nýverið að karlmaður á fimmtugsaldri á Akureyri hefði verið ákærður fyrir fíkniefna­lagabrot fyrir að hafa haft 0,56 grömm af tóbaks­blönduðu kannabis­efni í vörslum sínum þegar lögregla hafði afskipti af honum þann 4. febrúar 2025 á dvalar­stað hans.

Halldór Tumi Ólason aðstoðar­saksóknari og lögreglu­stjórinn á Norður­landi eystra eru ákærendur í málinu og þess var krafist að ákærði yrði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakar­kostnaðar.

Miðað við fyrirmæli Ríkis­saksóknara um lausn mála með sektar­greiðslum má áætla að sekt fyrir vörslu 0,56 gramma af kannabis nemi almennt um 54 þúsund krónum.

„Ástæða þess að viðkomandi aðili var ákærður var sú að hann hafði ekki gengist undir að ljúka málinu með …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár