Trump ætlar að setja „sinn mann“ í stól seðlabankastjóra

Bandaríkja­forseti er sagður ætla að skipa mann í stól seðla­bankastjóra Banda­ríkjanna sem hann kallar sinn mann.

Donald J. Trump Bandaríkja­forseti ætlar sér að útnefna Jerome Powell sem næsta seðla­bankastjóra Banda­ríkjanna, að því er Wall Street Journal greindi frá í dag, og staðfesti þannig orðróm um að Powell verði næsti aðastjórnandi þessa valda­mesta seðla­banka heimsins.

Á blaðamanna­fundi í dag hrósaði Trump núverandi seðla­bankastjóra, Janet Yellen, fyrir hennar störf, en hann hefur marg­ítrekað gagnrýnt hana og seðla­bankann fyrir stefnu bankans eftir fjármála­kreppuna fyrir nær áratug. Að því leytinu var hrósið í dag í full­kominni mótsögn við fyrri orð hans.

Meðaltals­hagtölur sína að bandarískur efnahagur hefur sjaldan verið sterkari, en atvinnu­leysi mælist nú 4,2 prósent heilt yfir landið, og hagvöxtur hefur verið viðvarandi níu ár í röð.

Yellen hefur sagt að nú sé tímabært að breyta um stefnu, en bankinn hefur fylgt endur­reisnar­áætlun við vaxta­ákvarðanir sína og í annarri vinnu.

Á vef Bloomberg segir að Trump hafi ekki viljað svara því skýrt, hvort hann væri með þessu hrósi í garð Yellen, að segjast ætla að endur­skipa hana.

Eins og áður segir er nú talið að Powell verði útnefndur, en hann þykir vel tengdur á Wall Street og innan Repúblikana­flokksins. Hann hefur unnið náið með Yellen innan bandaríska seðla­bankans og hefur stutt hana og stefnu hennar út á við.

Samkvæmt umfjöllun Wall Street Journal hefur Trump sagt samstarfs­mönnum sínum að Powell sé „hans maður“ og að hann fái stuðning hans til að gegna stöðu seðla­bankastjóra.

Óhætt er að segja að Seðla­banki Banda­ríkjanna sé valda­mikil stofnun, en yfir 60 prósent af gjaldeyris­forða heimsins er í Bandaríkjadal. Stefna bankans í vaxta­málum og öðrum málum, hefur því víðtæk áhrif um allan heim, ekki einungis í Banda­ríkjunum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár