Vísar ábyrgðinni á embættismenn: „Ég var erlendis á þessum vikum“

Sigríður Á. Andersen dómsmála­ráðherra segist enga aðkomu hafa haft að ákvörðun um að veita ekki aðgang að gögnum um mál Roberts Downey.

„Ég var erlendis á þessum vikum svo því sé haldið til haga,“ sagði Sigríður Á. Andersen dómsmála­ráðherra aðspurð um synjun ráðuneytisins á upplýsinga­beiðnum um mál Roberts Downey í sumar.

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir

Þórhildur Sunna Ævars­dóttir, þingkona Pírata, spurði ráðherra um aðkomu sína að þeirri ákvörðun á opnum fundi stjórn­skipunar- og eftirlits­nefndar sem nú stendur yfir.

Hún sagðist enga aðkomu hafa haft að ákvörðunum um að birta ekki gögnin, heldur einungis sérfræðingar og embættis­menn dómsmála­ráðuneytisins.

Sem kunnugt er komst úrskurðar­nefnd um upplýsingamál síðar að þeirri niður­stöðu í úrskurði sínum að dómsmála­ráðuneytið hefði gengið lengra í upplýsinga­leynd en eðlilegt væri samkvæmt ákvæðum upplýsinga­laga. 

Robert Downey

Aðspurð hvers vegna ekki hefði verið haft samband við umsagnar­aðila Roberts Downey áður en ráðuneytið synjaði brota­þolum og fjöl­miðlum um aðgang að gögnunum beindi ráðherra talinu að þeirri skoðun sinni að rétt væri að hafa samband við umsagnar­aðila á þeim tíma sem umsögnum þeirra sem sækja um uppreist æru er skilað inn í ráðuneytið.

Sigríður gekkst ekki við því að hafa gefið ranga mynd af viðbrögðum ráðuneytisins við upplýsinga­beiðnum með því að láta að því liggja að ráðuneytið sjálft hefði vísað málinu til úrskurðar­nefndar um upplýsingamál. 

„Ég hef aldrei haldið því fram að ég eða ráðuneytið hafi ákveðið að leita til úrskurðar­nefndarinnar,“ sagði hún og sakaði Þórhildi Sunnu um útúr­snúning eftir að hún varpaði fram spurningu um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár