Norwegian í sameiningarviðræðum

Víða eru í gangi sameiningar­viðræður hjá flug­félögum, til að ná fram hagræðingu í rekstri. Mörg flugfélög eru sögð fallvölt.

Hluta­bréf í Norweg­i­an hækkuðu í gær um 10 prósent, en undan­farnir mánuðir hafa verið félaginu erfiðir. Félagið hefur glímt við taprekstur og hefur hækkun olíuverðs sérstak­lega komið sér illa fyrir félagið.

Þá er stutt síðan samþykkt var að auka hlutafé félagsins um 17 milljarða, en það virðist fyrst og síðast hafa komið félaginu upp á ákveðinn stall til að eiga í formlegum viðræðum við önnur flugfélög.

Samkvæmt farþega­upplýsingum sem félagið birtir mánaðar­lega, þá fjölgaði farþegum sem flug­félagið flutti í maí um 17 prósent miðað við sama mánuði í fyrra. Voru farþegarnir í maí 3,4 milljónir

Í gærmorgun hafði þýska blaðið Süddeutsche Zeitung það eftir Carsten Spohr, forstjóra Lufthansa samsteypunnar, að félagið hans sé að skoða kaup á Norwegian. Sagði Spohr að það væri hrina sameininga framundan í evrópska flug­geiranum og því töluðu allir við alla.

British Airways hafði einnig sýnt félaginu áhuga, og má því búast við að það dragi til tíðinda á næstunni þegar kemur að þessum norræna risa í flug­rekstri.

Rekstr­ar­tekj­ur Norweg­i­an á fyrstu þrem­ur mánuðum árs­ins hækkuðu um þriðjung frá sama tíma­bili á síðasta ári og farþegum fjölgaði um prósent. Þrátt fyrir vöxtinn þá hafa ytri rekstrar­skilyrði lággjalda­flugfélaga versnað töluvert upp á síðkastið, meðal annars vegna hækkunar á olíuverði og vaxta­stigi í heiminum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár