Biðst afsökunar eftir frásögn Eddu

Frosti Logason, sjónvarps­maður á Stöð 2, gengst við því að hafa hótað að birta nektar­myndir af fyrr­verandi kærustu, Eddu Péturs­dóttur, sem steig fram í þættinum Eigin Konur í dag.

Frosti Logason
Frosti Logason Heldur úti hlað­varp­inu Harma­geddon og starfar við þátt­ar­gerð hjá Stöð 2.

Eftir frásögn Eddu Péturs­dóttur í þættinum Eigin Konur í dag af lands­þekktum kærasta sem hótaði henni að afhjúpa nektar­efni af henni, hefur Frosti Logason, sjónvarps­maður á Stöð 2, stigið fram og gengist við breytninni.

Edda sagðist í viðtali við Eddu Falak hafa verið ótta­slegin í áratug eftir sambandið. Birt hafa verið samskipti þar sem hann hótaði að dreifa nektar­myndum af henni í refsingar­skyni.

Frosti, sem er dagskrár­gerðarmaður í þættinum Íslandi í dag, stýrði þættinum Ósýnilega fólkið á Stöð 2 og er í stjórn SÁÁ, segist ekki hafa gert sér grein fyrir því hvað hann hefði sagt og gert í fyrra sambandi.

„Í dag birtist viðtal við fyrr­verandi kærustu mína sem ég átti í sambandi við á árunum 2009-2012 og var til umfjöllunar í Stundinni. Ég vil taka það skýrt fram að ég tek fulla ábyrgð á minni hegðun og rengi ekki upplifun hennar,“ segir Frosti á Facebook-síðu sinni.

„Samband okkar var ekki heilbrigt og framkoma okkar við hvort annað langt í frá til fyrir­myndar. Ég var á vondum stað á þessum tíma. Ég tók sambands­slit okkar mjög nærri mér og í kjölfar þeirra kom hryllilegt tímabil þar sem ég var haldinn þráhyggju og sagði og gerði hluti sem ég sé mikið eftir.“ 

Frásögn Eddu var fyrst og fremst af framgöngu Frosta eftir að sambandi þeirra lauk. Hún greindi þó frá því að fljótlega eftir að samband þeirra hófst hafi hann sakað han hana um að halda fram hjá sér. „Það átti ekki átt við nein rök að styðjast og ásakanirnar komu mér algerlega í opna skjöldu. Þetta versnaði þegar á leið og var orðið mjög þráhyggju­kennt undir lok sambandsins,“ sagði Edda í dag.    

Eftir að þau hættu saman upphófst tímabil þar sem hann sendi henni óheyrilegt magn tölvu­pósta og smáskilaboða, nánast daglega á tímabili. „Þá skapaðist einhverskonar umsáturs­ástand. Hann sendi mér tölvupóst oft í viku til að byrja með þar sem hann sakaði mig um svik og fór fram á að ég kæmi heiðar­lega fram við sig. Bréfunum fækkaði eftir því sem tíminn leið frá því við hættum saman en í um tæpt ár eftir sambands­slitin sendi hann hátt í 80 tölvubréf og fjölmörg sms. Í flestum eru einhverskonar hótanir og svo segir hann ógeðslega hluti um mig,“ sagði hún.  

Í tæpt ár þurfti hún að þola lang­varandi áreiti þar sem hann fór meiðandi orðum um hana og krafðist þess að hún bæði hann afsökunar á einhverju sem hann sakaði hana um, ellegar myndi hann birta kynferðislegar myndir og myndbönd af henni. Að lokum gaf hann upp dagsetningu og sagði ef hún hefði ekki brugðist við kröfum hans fyrir þann tíma myndi hann koma efninu í dreifingu. „Ef að ég verð ekki búin að fá neitt frá þér um að þér finnist leiðinlegt að hafa komið svona fram við mig þann 1. des næst­komandi mun ég túlka það þannig að þér sé skítsama um þetta allt. Þá mun ég láta allt gossa,“ sagði í einum tölvu­pósti frá honum, þar sem hann vísar í kynferðislegt myndefni af henni. 

Edda virðist nánast aldrei hafa svarað þessum skila­boðum, en þó beðið hann um að hætta. Þegar það gerðist ekki leitaði hún til lögreglunnar sem varaði hana við því að kæra hann. Hótanirnar sátu hins vegar lengi í henni og í hún var hrædd í áratug. Óttinn hafði meðal annars þær afleiðingar að hún forðaðist staði þar sem hún gæti rekist á hann og lét lítið fyrir sér fara. Hún sagðist enn vera hrædd um að myndefnið gæti farið í dreifingu. 

Frosti segist hafa eytt öllum samskiptum þeirra tveggja og ekki vitað á síðari árum hvað hann hafi sagt og skrifað.

„Með hjálp sálfræðings, þerapista og tólf spora samtaka hóf ég bataferil minn. Hluti af því ferli var að eyða öllum okkar fyrri samskiptum. Ég hef því ekki gert mér grein fyrir nákvæmlega hvað ég hafði sagt og skrifað á þessu tímabili fyrr en ég sá viðtalið við hana í morgun. Ég veit að ekkert getur bætt fyrir hegðun mína, það minnsta sem ég get gert er að gangast við því sem ég gerði og biðjast innilega afsökunar.“

Frásögn Eddu má sjá hér.

Edda Pét­urs­dóttir segir fráEdda Pét­urs­dóttir greinir frá and­legu ofbeldi í kjöl­far sam­bands­slita þar sem hún sætti stöð­ugu áreiti frá fyrr­ver­andi kærasta sínum. Á fyrsta árinu eftir sam­bands­slitin bár­ust henni fjölda tölvu­pósta og smá­skila­boða frá mann­inum þar sem hann ýmist lof­aði hana eða rakk­aði niður, krafð­ist við­ur­kenn­ingar á því að hún hefði ekki verið heið­ar­leg í sam­band­inu og hót­aði að birta kyn­ferð­is­legar myndir og mynd­bönd af henni ef hún færi ekki að vilja hans.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Axel Axelsson skrifaði
    ekkert annað að gera enn að biðjast afsökunar á því sem maður gerði á steinöld og þakka fyrir að allir sluppu ágætlega lifandi frá vígvelli . . .
    -5
    • Ársæll Níelsson skrifaði
      Afhverju getur þú aldrei bara haldið kjafti?
      1
  • Þórunn Hjartardóttir skrifaði
    ...Ég vil taka það skýrt fram að ég tek fulla ábyrgð á minni hegðun og rengi ekki upplifun hennar,“...og svo „Samband okkar var ekki heilbrigt og framkoma okkar við hvort annað langt í frá til fyrirmyndar.... - fyrir mér afhjúpar þetta narsissisma Frosta fullkomlega.
    18
    • Axel Axelsson skrifaði
      þetta komment frá þér afhjúpar þekkingaleysi þitt á Goldwater rule (https://en.wikipedia.org/wiki/Goldwater_rule) . . .
      -5
    • ÓGR
      Ólafur G. Reynisson skrifaði
      Þannig er, Axel, að samkvæmt þinni eigin heimild, fjallar þessi regla um ábyrgð geðlækna í bandarískum gæðlæknasamtökum en segir ekkert um ábyrgð íslenskra þýðenda eins og Þórunni. Það mætti frekar segja að hún afhjúpi þekkingarleysi á íslenskum lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Þá gæti hún bent á að það megi víkja frá ákvæðum þeirra laga og reglugerða í þágu fjölmiðlunar. "Já", gætir þú sagt, "til að þjóna mannkyninu" og bætt við: "Hvernig þjónar meintur narsissismi Frosta mannkyninu?"
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár