Rússar á Íslandi gefa Pútín flugmiða til Haag í afmælisgjöf

Rússar mótmæltu fyrir framan sendiráð Rússlands í tilefni af sjötugs­af­mæli Vladimírs Pútín. Vilja þeir senda hann til Haag þar sem hann svari fyrir glæpi sína fyrir Alþjóða sakamála­dómstólnum. Flug­númerið á táknrænum flugmiða forsetans er 666.

Óska Pútín óhamingjusams lífs í fangelsi Hópur Rússa á Íslandi gaf Pútín Rússlandsforseta táknræna afmælisgjöf í dag, flugmiða aðra leið til Haag þar sem Alþjóða sakamáladómstóllinn er til húsa.

Hópur Rússa sem búsettir eru á Íslandi kom saman í hádeginu í dag við sendiráð Rússlands í Garða­stræti. Vildi hópurinn koma afmælis­gjöf til Valdimírs Pútín Rúss­lands­forseta til skila en hann er sjötugur í dag. Afmælis­gjöfin var táknræn ávísun á flugmiða fyrir forsetann til Haag í Hollandi, þar sem alþjóð­legi sakamála­dómstóllinn er stað­settur.

Á ávísuninni segir: „Til hamingju með afmælið herra forseti. Til Vladimír Pútín frá Rússum, í tilefni allra þeirra glæpa sem hann hefur framið gegn úkraínsku þjóðinni og gegn þegnum í eigin landi. Við óskum þér langs og óhamingju­sams lífs í fangelsi.“

Á flug­miðanum er nafn Pútíns tilgreint og flug­tíminn sagður vera klukkan 12.35 í dag. Samkvæmt miðanum er Pútín ætlað sæti 1A á forsetafar­rými í flugi HUI 666. Talan 666 er í sögulegu samhengi alla jafna sögð vera tala djöfulsins.

„Við óskum þér langs og óham­ingju­sams lífs í fang­elsi“
Kveðja Rússa á Íslandi í til­efni afmælis Pútíns.

Enginn sendiráðs­starfsmaður kom til að veita afmælis­gjöf Pútíns móttöku og brugðu mótmælendur á það ráð að skila henni í póstkassa sendi­ráðsins. Mótmælendur veifuðu hvítbláum fána sem er tákn rússnesks andófs­fólks gegn innrás rússneskra stjórn­valda í Úkraínu. Ástæðan fyrir því að ekki er rauður litur í fánanum, eins og á hefð­bundnum fána Rússlands, er sú að með því að vill andófs­fólk fjarlægja sig frá ofbeldi og blóði.

Utanríkisráðuneytið segir Pútín bera alla ábyrgð

Alþjóð­legi sakamála­dómstóllinn opnaði fyrir rann­sóknir á stríðs­glæpum í Úkraínu 2. mars síðastliðinn, tæpri viku eftir innrás Rússa í landið. Þá þegar hafði dómstólinn fengið tilvísanir frá 39 löndum, þar á meðal Íslandi, um að rannsaka þyrfti mögulega stríðs­glæpi í landinu.

Innrás Rússa í Úkraínu hefur sætt gríðar­lega harðri gagnrýni og hefur hún aukist hægt og bítandi innan Rússlands eftir því sem á stríðið hefur liðið. Sú gagnrýni hefur orðið enn ljósari frá því að Pútín tilkynnti herkvaðningu í Rússlandi 21. september síðastliðinn. Rússar hafa farið halloka gegn Úkraínu­mönnum víða í bardögum síðustu vikur, einkum í Kharkív-héraði, sem enn hefur aukið á gagn­rýnina heima fyrir. Þá hefur alþjóða­samfélagið lýst því yfir að atkvæða­greiðslur sem fram fóru í fjórum héruðum í Úkraínu, Donetsk, Luhansk, Zaporizhizia og Kherson, séu mark­lausar, brjóti gegn alþjóða­lögum og að innlimun héraðanna í Rússland sé ólögleg og verði ekki viðurkennd.

Utan­ríkis­ráðuneyti Íslands kallaði sendi­herra Rússlands hér á landi, Mikhaíl Noskov, á sinn fund 3. október síðastliðinn þar sem fordæming Íslands á tilraunum Rússlands til að innlima úkraínsk lands­svæði var áréttuð. Sú framganga, auk óábyrgra hótana um beitingu kjarna­vopna væri óásættanleg. Pútín bæri alla ábyrgð á hinu grimmlega árásar­stríði og það væri undir honum komið að binda á það enda. Það var í fimmta sinn sem sendi­herranum er stefnt í utan­ríkis­ráðuneytið síðan innrásin var gerð í byrjun árs. 

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár