Rússneska sendiherranum stefnt í utanríkisráðuneytið til að taka við skömmum

Íslenska utan­ríkis­ráðuneytið kallaði rússneska sendi­herrann hér á landi á fund í dag þar sem honum var sagt að íslenska ríkið fordæmi harðlega tilraunir til að innlima úkraínsk landsvæði í Rússland.

Utanríkisráðherra
Utan­rík­is­ráð­herra Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir er utan­rík­is­ráð­herra Íslands. Ekki kemur fram í til­kynn­ingu ráðu­neytis hennar hvort hún hafi sjálf rætt við sendi­herra Rúss­lands í dag. Mynd: Heiða Helgadóttir

Rússneski sendi­herrann var kallaður á fund í íslenska utan­ríkis­ráðuneytinu í dag vegna innlimunar Rússa á héruðum í austur­hluta Úkraínu. Þar fékk sendi­herrann að heyra að íslensk stjórn­völd fordæmi harðlega tilraunir til að innlima landsvæði í Úkraínu og gervi atkvæða­greiðsluna sem fram hafi farið í algjörri andstöðu við alþjóðalög. 

Þetta kemur fram á Twitter-síðu þar sem utan­ríkis­ráðuneytið birtir tilkynningar á ensku. Ekki hefur neitt birst frá ráðuneytinu um málið á íslensku. Þá liggur ekki fyrir hvort það hafi verið Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa­dóttir utan­ríkis­ráðherra sjálf sem átti í orða­skiptum við rússneska sendi­herrann. 

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ásgeir Överby skrifaði
    Samkvæmt rúv var utanríkisráðherrann ekki viðstaddur. Reynt að víkja sér undan óþægilegum verkum?
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár