Veiruafbrigðið „deltakron“ var aldrei til

Fyrir hálfum mánuðum breiddust fréttir af nýju ofur­afbrigði kórónu­veirunnar, deltakron, eins og eldur í sinu um heiminn. En vísinda­menn segja nú að afbrigðið hafi aldrei verið til.

Raðgreiningar eru mikilvægt tæki til að fylgjast með þróun kórónuveirunnar.
Rað­grein­ingar eru mik­il­vægt tæki til að fylgj­ast með þróun kór­ónu­veirunnar. Mynd: EPA

Þær fréttir bárust frá Kýpur-háskóla þann 7. janúar að vísinda­menn við skólann hefðu raðgreint nokkrar kórónu­veirur og að í ljós hafi komið að í genamengi þeirra hefðu fundist eigin­leikar bæði delta og omikron-afbrigðisins.

Veiru­fræðingurinn sem fór fyrir hópnum, Leondios Kostrikis, flutti þessi tíðindi í sjónvarpi á Kýpur. Afbrigðið sem vísinda­mennirnir töldu sig hafa greint var þegar í stað kallað deltakron og höfðu upplýsingar um uppgötvunina á þessum tíma­punkti verið færðar inn í hinn opna gagna­grunn GISAID. Frétta­stofa Bloomberg fékk veður af þessu og birti fyrstu frétt um málið innan við sólar­hring eftir að Kýpverjar höfðu fengið að heyra af hinu nýja – og meinta – kórónu­veiru­afbrigði.

Það er ekkert skrítið að fréttin hafi farið á flug í fjöl­miðlum um allan heim. Ómíkron-afbrigðið, sem vísinda­menn í Botsvana og Suður-Afríku höfðu fyrstir allra greint í nóvember, hafði valdið ótta enda mun meira smitandi en delta-afbrigðið sem á undan hafði komið. Delta er hins vegar ekki eins smitandi, þótt smitandi sé, en veldur þeim mun alvarlegri veikindum. Að heyra svo af ofur-afbrigði með eigin­leika beggja þessara veira, kallaði fram hroll hjá mörgum.

Kýpversku vísinda­mennirnir höfðu aðeins raðgreint 52 veirusýni sem höfðu eigin­leika beggja afbrigð­anna. Vísinda­menn annars staðar í heiminum bentu þegar í stað á að svo fá sýni gætu ekki verið grund­völlur til að slá nokkru föstu. Nokkrir komu fram með þá kenningu að mun líklegra væri að sýnin á rannsóknar­stofu Kýpur-háskóla hefðu spillst.

„Það er ekkert til sem heitir deltakron,“ skrifaði Krutika Kuppalli, sem er í tækni­teymi Alþjóða heilbrigðis­stofnunarinnar, á Twitter. „Ómíkron og delta hafa EKKI myndað ofur-afbrigði.“ Yfirmenn WHO hafa einnig sagt hið sama en bent á að fólk geti verið smitað af delta- og ómíkron-afbrigðunum samtímis.

Þá bendir Arnar Pálsson erfða­fræðingur á það í nýju svari á Vísinda­vefnum að það sé fjarlægur möguleiki, en raun­verulegur þó, að tvö eða fleiri afbrigði myndi nýtt blendings­afbrigði, með endur­röðun erfða­efnis.

Vísinda­menn um allan heim hafa verið hvattir til að skrá upplýsingar um raðgreiningar sínar í GISAID-gagna­grunninn. Þannig hefur tekist að fylgjast vel með þróun veirunnar og stökk­breytingum hennar. En dæmið frá Kýpur-háskóla þykir að margra mati sýna að fara verði varlega í allar yfir­lýsingar og að grand­skoða verði mál ofan í kjölinn, að minnsta kosti áður en greint er frá þeim opinber­lega. Af nógu mörgum slæmum fréttum hefur verið að taka í faraldrinum þó að rangar upplýsingar séu ekki einnig settar í dreifingu.

Kostrikis hefur svarað þeirri gagnrýni með því að fjöl­miðlar hafi mistúlkað orð hans. Hann hafi aldrei haldið því fram að nýtt blendings­afbrigði ómíkron og delta væri orðið til. Um kenningu hefði verið að ræða. Þremur sólar­hringum eftir að hafa sett niður­stöður raðgreininga sinna inn í gagna­grunninn fjarlægði hann þær og sagði að frekari rannsókna á þeim væri þörf.

Mistök fyrirsjáanleg

Talsmaður GISAID segir að frá upphafi faraldursins hafi yfir 7 milljón genamengi kórónu­veira verið sett inn í gagna­grunninn og að einstaka mistök við raðgreiningar ættu því ekki að koma mjög á óvart.

Raðgreiningar á „deltakron“ voru gerðar á sýnum sem tekin voru á Kýpur í desember. Kostrikis segir í samtali við vísinda­tímaritið Nature að kenning teymisins hefði verið sú að delta-afbrigðið hefði tekið stökk­breytingar í brodd­próteininu sem svipaði til eigin­leika ómíkron – eigin­leika sem gera það afbrigði mun meira smitandi. Sérfræðingar annars staðar í heiminum rýndu í gögnin frá Kýpur og töldu mun líklegra að um mannleg mistök hefði verið að ræða. Sýnin hefðu spillst á rannsóknar­stofunni. Blandast saman.

Slíkt er ekki óalgengt segja viðmælendur Nature og því er svo mikilvægt að fara varlega í allar ályktanir til að byrja með.

Kostrikis efast hins vegar sjálfur um að kross­mengun hafi átt sér stað á rannsóknar­stofunni en telur engu að síður þörf á að rannsaka alla möguleika. Kollegar hans hafa svo einhverjir bætt við að ef engin mistök hafi verið gerð á rannsóknar­stofunni og raðgreiningar veiru­sýnanna þar með réttar, breyti það ekki því að stökk­breytingarnar sem Kýpverjarnir fundu eru alls ekki aðeins bundnar við ómíkron heldur finnast í ýmsum öðrum afbrigðum veirunnar. Deltakron sé því rangnefni.

Þótt Kostrikis hafi verið gagn­rýndur fyrir að oftúlka niður­stöðurnar hefur honum verið hrósað fyrir að skrá raðgreiningarnar inn í gagna­bankann. Vísinda­menn mega ekki hika við slíkt, segja viðmælendur Nature, en þeir verða hins vegar að tala mjög varlega. „Allt sem við segjum getur valdið því að landa­mærum er lokað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár