Sífellt stærri hluti íbúa landsins útilokaður frá þátttöku í stjórnmálum

„Hverjir stjórna Íslandi?“ spyr Gylfi Magnússon í nýjasta tölublaði Vísbendingar.

Gylfi Magnússon
Gylfi Magn­ús­son Mynd: RÚV/skjáskot

„Það torveldar auðvitað leið þeirra sem fæddir eru utan Íslands á Alþingi að til þess að komast þangað þarf íslenskan ríkis­borgararétt. Búseta dugar ekki. Það er vitaskuld umhugsunar­vert að sífellt stærri hluti íbúa landsins er þannig útilokaður frá þátttöku í stjórn­málum á landsvísu. Ríflega 50 þúsund búa á Íslandi með erlent ríkisfang.“

Þetta skrifar Gylfi Magnússon, prófessor við viðskipta­fræði­deild Háskóla Íslands, í nýjustu Vísbendingu.

Hann skoðar meðal annars í greininni hvernig landsmenn raðast á valda­stóla. „Þannig eru nú rétt tæplega 1 af hverjum 5 íbúum Íslands fæddir utan landsins. Með hlutfallslegri skiptingu þingsæta ætti það að þýða að 12 þingmenn væru það líka, þar af 4 fæddir í Póllandi. Það þarf ekki að leggjast í tímafreka rannsókn á uppruna íslenskra alþingis­manna til að átta sig á að því fer fjarri að skiptingin sé þannig.“

Gylfi bendir að þrír af núverandi alþingis­mönnum séu fæddir í útlöndum, nánar tiltekið einn hver í Stokk­hólmi, Kaupmanna­höfn og París. „Þeir geta þó tæplega talist fulltrúar innflytjenda, að minnsta kosti bendir skráning foreldra í sama tali ekki til þess. Innflytjendur hafa þó setið á Alþingi áður fyrr, þótt ekki séu þeir margir. Einn þeirra virtist raunar inni á núverandi þingi í stutta stund eftir síðustu kosningar en datt út aftur þegar búið var að telja nógu oft í Borgarnesi.“

Hann segir að 38 af alþingis­mönnunum séu fæddir í Reykjavík, sem sé auðvitað talsvert hærra hlutfall en Reyk­víkingar eru af íbúum landsins en ekki óeðlilegt sé tekið tillit til þess að þangað leiti konur úr nágranna­sveitar­félögunum og víðar til að fæða. Það sé kannski skrýtnara að sex eða tæp 10 prósent núverandi alþingis­manna eru fæddir á Akranesi. „Væntanlega er það þó bara tilviljun. En enginn alþingis­maður er fæddur í Varsjá eða Vilníus. Raunar enginn fæddur utan Norð­vestur-Evrópu.“

Vantar unga alþingismenn

Gylfi horfir einnig til aldurs­dreifingar þingmanna. „Einn alþingis­maður er eldri en sjötugur en það eru 10 prósent íbúa landsins og 13 prósent þeirra sem eru á kjörskrá. Miðað við það ættu alþingis­menn yfir sjötugu að vera 8. Það vantar líka unga alþingis­menn. Tveir þeirra eru undir þrítugu en það eru 22 prósent kjósenda sem ætti að skila 14 þingsætum.

Alþingis­manna­talið dugar skammt til að flokka þingmenn eftir öðrum sjónar­hornum, svo sem kynhneigð, trúar­brögðum eða í vinstr- og hægrhenta. Það liggur þó fyrir að bæði þingmenn og ráðherrar hafa komið úr hópi samkyn­hneigðra. Þeir eru raunar örugglega talsvert fleiri en vitað er enda héldu menn og konur slíku leyndu lengi vel. Það var mikill áfangi þegar samkyn­hneigð kona varð forsætis­ráðherra. Mikilvægt skref fyrir bæði konur og samkyn­hneigða og auðvitað þjóðina alla. Þegar sá múr hafði verið brotinn var þó eins og hann skipti eftir það sáralitlu máli, að minnsta kosti er varla nokkur þjóðmála­umræða um kynhneigð íslenskra stjórn­málamanna nú og það var nánast hversdagslegt skref þegar önnur konan varð forsætis­ráðherra. Það er auðvitað eins og það á að vera.“

Allir forsetar Íslands hægrhentir

Gylfi telur að sum flokkun skipti litlu ef nokkru máli. Þannig hafi allir forsetar lýðveldisins verið hægrhentir.

„Það leiða líklega fáir hugann að því. Kannski munu vinstrhentir fagna í skamman tíma þegar og ef sá fyrsti úr þeirra hópi nær kjöri en þar með verður það líka útrætt mál. Sex af síðustu tólf forsetum Banda­ríkjanna hafa hins vegar verið vinstrhentir. Það er skemmtileg staðreynd sem þó skiptir varla nokkru máli. Nema kannski fyrir Gerald Ford, einn þeirra vinstrhentu. Ein skýring – reyndar langsótt – á tapi hans í forseta­kosningunum 1976 var að ímynd hans hefði liðið fyrir þetta. Þessi kenning virðist þó ekki standast nánari skoðun enda hafa aðrir vinstrhentir Bandaríkja­forsetar ekki lent í því sama. Almennt eru stjórn­málamenn auðvitað ekki flokkaðir eftir því með hvorri höndinni þeir undirrita embættis­eiðinn enda engin ástæða til þess. Það skiptir meira máli hvort þeir teljast vinstra eða hægra megin á litrófi stjórn­málanna.“

Fólk raðast ekki upp við víglínur íslenskra stjórnmála eftir trúarbrögðum

Hann bendir á að flokkun eftir trúar­brögðum geti hins vegar verið stórmál. „Spyrjið bara Norður-Íra. Jafnvel þar virðast trúar­brögðin þó smám saman vera farin að skipta minna máli. Að minnsta kosti gerðust þau undur og stórmerki nú í vor að flokkur kaþólikka fékk í fyrsta sinn fleiri þingmenn á norður-írska þinginu en helsti keppinauturinn, flokkur mótmælenda ... og fáir kipptu sér upp við það. Skipting eftir tungu­málum getur verið enn erfiðari, spyrjið bara Belga eða Kanada­menn.“

Hann segir að á Íslandi hafi auðvitað nánast allir verið í þjóð­kirkjunni lengi vel en jafnvel eftir að það breyttist hafi sáralítil umræða verið um trú stjórn­málamanna.

„Kannski skýrir það lítinn áhuga lands­manna á trúmálum stjórnmála­fólks að fólk raðast ekki upp við víglínur íslenskra stjórn­mála eftir trúar­brögðum og stjórn­málamenn tala flestir lítið sem ekkert um trú. Þjóðin saup hveljur þegar forsætis­ráðherra bað Guð að blessa Ísland haustið 2009. Það mundi enginn eftir nýlegum fordæmum fyrir slíku tali. Kannski var hann samt bænheyrður, að minnsta kosti lenti hagkerfið á löppunum á endanum,“ skrifar hann.

Hægt er að lesa grein Gylfa í heild sinni með því að ger­­­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár