Mögulegt en ekki líklegt að sýkjast tvisvar af ómíkron

Að sýkjast tvisvar af tveimur undir­afbrigðum ómíkron-afbrigðis kórónu­veirunnar er mögulegt en gerist mjög sjaldan. Þetta er niður­staða nýrrar danskrar rann­sóknar.

Undirafbrigði ómíkron þykja ekki það stökkbreytt að telja megi þau sem ný afbrigði.
Und­ir­af­brigði ómíkron þykja ekki það stökk­breytt að telja megi þau sem ný afbrigði. Mynd: EPA

Í Danmörku tók undir­afbrigði ómíkron, BA.2, fljótt yfir uppruna­lega afbrigðið. BA.2 er enn meira smitandi en virðist ekki valda alvarlegri einkennum. Hins vegar er undir­afbrigðið BA.1 útbreiddara á heimsvísu og enn útbreitt í Danmörku og því hafa vaknað spurningar um hvort hægt sé að sýkjast af þeim báðum.

Smit­sjúkdóma­stofnun Danmerkur (Statens Serum Institut) hefur nú birt fyrstu niður­stöður sínar í rannsókn á þessu. Samkvæmt þeim getur sami einstaklingur smitast bæði af BA.1 og BA.2 stuttu síðar en það gerist þó sjaldan.

Undir­afbrigðin BA.1 og BA.2 eru bæði kölluð ómíkron því þrátt fyrir að um 40 stökk­breytingum muni á þeim eru þær ekki þess eðlis að Alþjóða heilbrigðis­mála­stofnunin líti svo á að um ný afbrigði sé að ræða. BA.2 greinist nú í 88 prósent tilfella í Danmörku og er einnig að ná yfir­höndinni í Bretlandi, Suður-Afríku og Noregi.

Danska smit­sjúkdóma­stofnunin komst að því í rannsókn sinni, sem enn hefur ekki verið ritrýnd, að þeir sem sýkst hafa af bæði BA.1 og BA.2 séu aðallega ungt og óbólusett fólk. Það hefur aðeins upplifað mild sjúkdóms­einkenni og enginn úr þessum hópi hefur látist eða þurft að leggjast inn á sjúkrahús.

1.739 manns í Danmörku greindust tvisvar með 20-60 daga millibili á tíma­bilinu 21. nóvember til 11. febrúar. Á sama tíma voru 1,8 milljónir smita staðfest í landinu. Talið er að aðeins brot þeirra 1.739 sem greindust tvisvar hafi í báðum tilvikum sýkst af undir­afbrigðum ómíkron. Delta var enn á sveimi á þessu tímabili.

Samkvæmt upplýsingum frá WHO er ómíkron lang útbreiddasta afbrigði kórónu­veirunnar í heiminum í dag og er nánast það eina sem raðgreinist. Þrjú megin undir­afbrigði hafa greinst: BA.1, BA.1.1 og BA.2. WHO segir að BA.2 sé að verða útbreiddara en hin undir­afbrigðin en að í heildina fari þó smitum fækkandi almennt á heimsvísu og dauðsföllum vegna COVID-19 sömuleiðis.

Eðli veira er að stökk­breytast stöðug. Þær gera það í hverjum einstaklingi og er þær smitast á milli einstaklinga. Hins vegar er nú talið líklegt, að því er fram kom á upplýsinga­fundi WHO í gærkvöldi, að hægja muni á stökk­breytingum. Þannig að ný afbrigði muni ekki koma jafn ört fram og hingað til. Skýringin er sú að ónæmi er orðið útbreiddara en áður var, bæði vegna sýkinga og bólu­setninga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár