Boða frjálshyggju á Íslandi í gegnum samtök tengd Koch-bræðrum

Alþjóða­samtök sem fjár­mögnuð eru af Charles Koch styrkja útbreiðslu frjáls­hyggju meðal ungs fólks á Íslandi. Breki Atlason, alþjóða­fulltrúi Miðflokksins, fer fyrir samtökunum hérlendis og sækist eftir kjöri í borgar­stjórn. Hugveita sem Hannes Hólmsteinn Gissurarson stýrir tengist sama vef samtak­anna.

Á Atreju ráðstefnunni í Róm
Á Atreju ráð­stefn­unni í Róm Breki Atlason, fyrir miðju, sótti ráð­stefnu íhalds­manna í Róm í fyrra. Til hægri er Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son, en báðir fara þeir fyrir félögum sem tengj­ast Atlas Network. Með þeim, frá vinstri, eru Björn Ingi Hrafns­son, Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son og Einar Jóhannes Guðnason úr Mið­flokknum.

Bandarísku samtökin Students for Liberty, sem fjár­mögnuð eru í gegnum net félaga sem bandaríski milljarðamæringurinn Charles Koch hefur styrkt, boða hugmynda­fræði frjáls­hyggju á Íslandi. Hugveita sem Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor emeritus, er aðili að sama neti félaga. Áhrifa­fólk í Miðflokknum verður sífellt meira áberandi í starfi Students for Liberty, sem hingað til hefur helst verið tengt fólki úr Sjálfstæðis­flokknum.

Alþjóða­fulltrúi Miðflokksins, Breki Atlason, leiðir Students for Liberty á Íslandi, og sækist nú eftir sæti á lista Miðflokksins fyrir borgar­stjórnar­kosningar. Hann hefur staðið fyrir ráðstefnum með áhrifa­fólki af hægri væng stjórn­málanna, bæði innlendu og erlendis frá, sem ætla má að fái fjár­stuðning frá alþjóða­skrifstofu Students for Liberty miðað við opinbera stefnu samtak­anna um að styðja þá viðburði sem tugir þúsunda fulltrúa þeirra um heim allan standa fyrir. 

Breki svaraði ekki spurningum Heimildarinnar um málið þegar eftir því var leitað.

Milljarðamæringurinn Charles Koch, sem ásamt bróður sínum, David, stofnaði …

Kjósa
55
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (7)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Óskhyggjan byggir á trúarbrögðum, engin rök. Í veikleikanum er óskin um að verða faðir allra og geta stýrt án útskýringa ofar öllu. Ekkert ves bara einn drotnari.
    0
  • MÁ
    Margrét Ásgeirsdóttir skrifaði
    Sorglegt að sjá miðaldra karla upphefja fortíð sem kynslóðir foreldra þeirra, afa
    og ömmu upplifði og bar varanlegan skaða af. Sorglegast af öllu er að þeir skuli hafa áhrif á unga pilta í sjálfsmyndarkrísu og láta þá halda að hún sé af völdum útlendinga, jafnréttis og samhygðar með þeim sem eru hinsegin. Sókn í auð og að fullnægja hvötum til alræðis er hættuleg og á hraðri uppleið í okkar samfélagi. Afsökuð með því að drengjum af íslenskum uppruna sé ekki sinn nógu vel í nútímanum. Á sama tíma sjáum við að karlmenn, sem var farið illa með á barnsaldri, þora loks að tjá sig um meðferð kerfis sem byggði á þessari fortíðarhyggju.
    7
  • JL
    Jón Logi skrifaði
    Dreg ekki í efa að þessi vaska sveit frómra og fordómalausra manna hitti í mark hjá mörlandanum.
    3
  • MS
    Michael Schulz skrifaði
    The Koch brothers, the brotherhood in Rome, ...!? "Mussoloni" must have been delighted!
    5
  • JBÓ
    Jón Brynjólfur Ólafsson skrifaði
    Það er um margt ótrúlegt að lesa um fólk sem er að grafa um sig í þessum jarðvegi. Það þarf ekki að fara nema til fyrri hluta seinustu aldar til að átta sig á því hvaða hrylling fólk, sem grefur um sig í þessum jarðvegi, getur skapað. Oft hefur það komið fram að það er ekki vitað hvað margir voru drepnir í þeirri óreiðu sem var sköpuð. Hvort það voru 90 – 100 – 110 miljónir manna sem dóu í óreiðunni, sem frekju- valda- og græðgisfólkið skapaði. Frekju- valda- og græðgisfólkið réttlætir gerðir sýnar með einhverri barnalegri hugmyndafræði. Hugmyndafræði sem er gengið um eins og trúabrögð. Öfgar verða til og hryllingurinn veður fram.
    Hvers vegna er það sem svona endurtekning verður? Umræða hefur verið um takmarkaðan lesskilning grunnskólabarna. Ætli að það eigi við um fólk á öllum aldri, e.t.v. sérstaklega fólk í stjórnmálum. Stjórnmálafólk sé svo upptekið af sjálfum sér og „kenningunni“ og eða „trúarbrögðunum“, að það geti ekki tileinkað sér reynslu sögunnar, lesið sér til gagns. E.t.v. má finna skýringu í heimspeki . . . . að um sé að ræða smábarnasálir sem ráfi um meðvitundarlausar í sal fáfræðinnar og finnist það mikil upphefð. Upphefðin er þá að vera hluti af bræðralagi myrkursins. Er mikil upphefð í því?
    Eitt er víst að allir þurfa að vera meðvitaðir um á hvaða vegferð þeir eru. Við erum öll hluti af heildinni og þurfum að haga okkur samkvæmt því.
    11
  • Sveinn Ingólfsson skrifaði
    Er verið að undirbúa næsta hrun. Er ekki hrunið 2008 nóg. Þetta minnir mig óhugnanlega á það. Þá misstu 10 þúsund fjölskyldur heimilin sín. Hver vill endurtaka það???
    9
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Því miður ekkert sem kemur á óvart hér. Við getum líka átt von á miklum þrýstingi eða jafnvel hótunum frá Bandaríkja forseta þegar kemur næst að þingkosningum. Það sækjast sér um líkir.
    12
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

MAGA-tengingar Miðflokksins

GreiningMAGA-tengingar Miðflokksins

„Þvættingur“ og „tóm steypa“ nú sögð eðlileg tengsl við erlenda flokka og hugveitur

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, sagði umfjöllun Heim­ild­ar­innar um tengsl flokksins við MAGA-hreyfinguna „full­kominn þvætting“ en staðfesti fund sinn með Repúblikönum í Gautaborg. Aðrir flokks­menn hafa nú sagt frá tengslum við ECR-flokkinn og Heritage Foundation en eftir standa spurningar um hver borgaði.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár