Suður-Kórea með stórskotaæfingu á Japanshafi

Spennan magnast enn á Kóreu­skaga. Banda­ríkin krefjast þess að Sameinuðu þjóðirnar leiði þvingunar­aðgerðir.

Kim Jong-un, leiðtogi Norður-Kóreu, skælbrosandi í skoðunarferð.
Kim Jong-un, leið­togi Norður-Kóreu, skæl­bros­andi í skoð­un­ar­ferð. Mynd: EPA

Her Suður-Kóreu, sem nýtur mikils stuðnings Banda­ríkjanna, er nú með stóra heræfingu á Japanhafi þar sem flug­skeytum er skotið af herskipum og skot­pöllum. Stjórn­völd segja her landsins í viðbragðs­stöðu ef til átaka kemur, en spennan á Kóreguskaga er nú mikil.

Neyðarráð Suður-Kóreu hefur nú þegar krafist þess að Norður-Kórea verði beitt strangari þvingunum til að draga úr hernaðar­mæti.

Nú þegar hefur Norður-Kórea framkvæmt sex tilraunir með kjarnorku­vopn. Sú síðasta fór fram í síðustu viku þar sem kjarnorku­sprengja var sprengd, og skapaði hún jarð­skjálfta upp á 6,3. Hann fannst vel í Suður-Kóreu og einnig í Kína.

Í umfjöllun New York Times segir að Kim Jong Un, leiðtogi Norður-Kóreu, sé að „biðja um stríð“ og er þar vitnað til embættis­manna í Hvíta húsinu. Bandarísk stjórn­völd vilja að Sameinuðu þjóðirnir stýri ferðinni, samkvæmt umfjöllun New York Times.

Nikki R. Haley, sendi­herra Banda­ríkjanna gagnvart Sameinuðu þjóðunum, hefur ítrekað þá afstöðu Banda­ríkjanna að nú þýði ekkert að láta frá sér orðin tóm. Aðgerðir, sem dragi úr spennunni á Kóreu­skaga, séu nauðsynlegar og tafar­laust þurfi Norður-Kórea að hætti öllum hernaðar­umsvifum.

Ekkert bendir til þess að stjórn­völd í Norður-Kóreu ætli sér að hætta tilraunum með flug­skeyti eða kjarnorku­vopn. Donald Trump, Bandaríkja­forseti, hefur varað Norður-Kóreu við því að halda áfram tilraunum sínum og segir að Bandaríkjaher sé tilbúinn að beita hervaldi til að verja bandamenn sína, og muni þá beita yfir­burðum sínum af fullum þunga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár