Fasteignamarkaðurinn á bremsunni í Skandinavíu

Ýmis merki eru um að virknin á fasteigna­markaðnum í Noregi, Svíþjóð og Danmörku hafi minnkað á síðustu mánuðum. Álits­gjafar telja að nýlegar verð­hækkanir hafi einungis verið bundnar við faraldurinn og verði minni í fram­tíðinni.

Riddarahólmurinn í Stokkhólmi í Svíþjóð
Ridd­ara­hólm­ur­inn í Stokk­hólmi í Svíþjóð Mynd: Benoît Derrier/Wikimedia Commons.

Verð á fasteignum í Noregi, Svíþjóð og Danmörku hefur staðið í stað eða lækkað á milli mánaða frá því í vor, eftir að hafa hækkað mikið eftir að faraldurinn byrjaði. Þetta kemur fram þegar nýleg tölfræði um íbúða­markaðinn er skoðuð í löndunum þremur.

Samkvæmt fagfélagi fasteigna­sala í Noregi, Eiendom Norge, lækkaði fasteigna­verðs­vísitalan þar í landi um 0,2 prósent milli mánaða í síðasta mánuði. Lækkunin var svo tvöfalt meiri í Osló, eða 0,4 prósent. Sama þróun virðist vera að eiga sér stað í Stokk­hólmi, þar sem fasteigna­verð lækkaði um 0,3 prósent milli apríl og maí.

Lækkunin er þó ekki jafnmikil ef tekið er tillit til árstíðar­breytinga, en virknin á fasteigna­markaðnum er gjarnan minni á sumrin heldur en á veturna. Þó hafa árstíða­leiðréttar verð­hækkanir milli mánaða verið mun minni á síðustu mánuðum í Noregi heldur en í vetur.

Henning Lauridsen, framkvæmda­stjóri Eiendom Norge, segir í viðtali við norska blaðið Dagens Næringsliv að það líti út fyrir að toppnum á verð­hækkunum þar í landi hafi verið náð í mars og að búast megi við hóflegum verð­hækkunum í fram­tíðinni.

Í Danmörku var nokkuð mikil verð­hækkun í vor, en samkvæmt nýlegri frétt frá Berlingske eru nú merki um að fasteigna­markaðurinn þar í landi sé að kólna aftur, þar sem fleiri íbúðir eru nú til sölu heldur en áður.

Lise Nytoft Bergmann, fasteigna­hagfræðingur í Nordea, segir í viðtali við danska blaðið Berlingske að vaxandi framboð íbúða á sölu styrki þá tilgátu að þensla síðustu mánaða á fasteigna­markaðnum sé fyrst og fremst bundið við heims­faraldurinn. Því meiri takmarkanir sem hafa verið í gildi, því meiri hefur áhuginn á fasteigna­kaupum verið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár