Kristján Þórður gefur ekki kost á sér í forsetaembættið

Starfandi forseti ASÍ hyggst ekki gefa kost á sér til þess að leiða sambandið á þingi ASÍ í október. Hann ætlar að einbeita sér að verkefnum Rafiðnaðar­sambands Íslands, þar sem hann gegnir formennsku.

Kristján Þórður Snæbjarnarson
Kristján Þórður Snæ­bjarn­ar­son Mynd: Bára Huld Beck

Kristján Þórður Snæbjarnarson, sem verið hefur forseti Alþýðu­sambands Íslands frá því að Drífa Snædal sagði af sér embættinu í byrjun ágúst­mánaðar, ætlar ekki að gefa kost á sér til þess að leiða sambandið áfram. Frá þessu sagði hann í færslu á Facebook í morgun, en áður hafði hann sagt að hann væri að íhuga framboð til forseta á þingi ASÍ, sem fram fer í október.

Kristján Þórður, sem er formaður Rafiðnaðar­sambands Íslands, ætlar þó áfram að gefa kost á sér til forystu í ASÍ, sem 1. vara­forseti.

Í færslu sinni segir hann að það hafi reynst áhugavert verkefni að starfa sem forseti ASÍ undan­farinn tæpan mánuð.

„Það að stuðla að auknu samtali á milli ólíkra hópa innan ASÍ hefur verið mjög gefandi og augljóst að verkalýðs­hreyfingin á spennandi tíma fyrir höndum. Ég hef átt mörg góð samtöl við fólk víða í samfélaginu um þetta verkefni og fengið miklar hvatningar fram á við. Ég hef því þurft að gera upp við mig hvað ég hyggist gera á næstu mánuðum en sú ákvörðun er að sjálfsögðu verulega flókin þar sem verkefnin eru spennandi bæði það að starfa fyrir Rafiðnaðar­samband Íslands sem og að vinna fyrir stærstu heildar­samtök launa­fólks á íslenskum vinnu­markaði,“ segir Kristján Þórður í færslu sinni.

Hann bætir því við að verkefnin framundna hjá Rafiðnaðar­sambandinu séu gríðar­lega stór og gefandi, bæði gerð kjara­samninga auk annarra verkefna í daglegu starfi sambandsins sem komi inn á hans borð.

„Ég hef því ákveðið að gefa ekki kost á mér í embætti forseta ASÍ að svo stöddu heldur einbeita mér að verkefnum RSÍ. Ég mun þó áfram gefa kost á mér til þátttöku í forystu ASÍ sem 1. vara­forseti enda mikil þörf á að tryggja að rödd iðn- og tækni­fólks heyrist innan heildar­samtakanna,“ skrifar Kristján Þórður.

Með þessari ákvörðun bætist Kristján Þórður í þann hóp verkalýðs­foringja sem hafa útilokað að bjóða sig fram til forseta­embættis ASÍ.

Áður voru þau Sólveig Anna Jóns­dóttir formaður Eflingar og Vilhjálmur Birgisson formaður Starfs­greina­sambandsins og Verkalýðs­félags Akraness búin að tilkynna opinber­lega að þau hyggist ekki bjóða sig fram til embættisins.

Sá síðarnefndi sagði við það tækifæri að hann myndi styðja Ragnar Þór Ingólfsson formann VR til forystu í Alþýðu­sambandinu, en enn sem komið er hefur Ragnar Þór ekki staðfest að hann ætli að gefa kost á sér í forseta­embættið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár