Norsk stjórnvöld segja það ekki hægt að semja út fyrir bóluefnasamning ESB

Þau lönd sem hafa ákveðið að taka þátt í samvinnu­verkefni Evrópu­sambandsins um kaup á bóluefnum geta ekki samið beint við bóluefna­fram­leiðendur, samkvæmt heilbrigðis­ráðherra Noregs.

Bent Høie, heilbrigðisráðherra Noregs
Bent Høie, heil­brigð­is­ráð­herra Noregs Mynd: EPA

Heilbrigðis­ráðherra Noregs segir það ómögulegt fyrir þau lönd sem tóku þátt í samvinnu­verkefni Evrópu­sambandsins (ESB) um kaup á bóluefnum gegn COVID-19 að semja beint við bóluefna­fram­leiðendur, þar sem slíkir samningar geti eyðilagt samstöðu Evrópu­landanna.

Þetta kemur fram í frétt norska ríkis­útvarpsins, NRK, sem birtist í dag. Samkvæmt fréttinni hvatti Ingvild Kjerkol, talskona Verkamanna­flokksins (Arbeiderpartiet) í heilbrigðis­málum, norsk heilbrigðis­yfirvöld til að verða sér úti um meira bóluefni hraðar, en einungis 40 þúsund skammtar af bólu­efninu hafa nú borist til landsins.

„Við ættum algjör­lega að hugleiða eigin kaup­samninga á bóluefni utan samningsins við ESB, ef það er mögulegt,“ sagði Kjerkol og bað ríkis­stjórnina um að svara hvort núverandi samningur gefi Norð­mönnum möguleika á að standa í eigin samninga­viðræðum.

Verkamanna­flokkurinn, sem situr ekki í ríkis­stjórn, fékk hljóm­grunn í þinginu víðar úr stjórnar­andstöðunni. Marit Arnstad, þingkona Miðflokksins (Senterpartiet), segir að reynsla Kanada­manna, Ísraela, Breta og Mexíkóbúa sýni að hægt sé að tryggja bóluefni án samninga við Evrópu­sambandið (ESB) eða Evrópska efnahags­svæðið (EES).

Hins vegar segir heilbrigðis­ráðherra Noregs, Bent Høie, að það sé ekki mögulegt fyrir Noreg að semja við Pfizer eða aðra bóluefna­fram­leiðendur beint, utan samvinnu­verkefnis Evrópu­sambandsins. „Samningurinn sem við höfum við Evrópu­sambandið felur í sér að hér sé samstaða. Þá geta löndin ekki samið út af fyrir sig og keppst hvert við annað og eyðilagt samstöðuna þannig. Norska ríkis­stjórnin velti upp þessum möguleika, en mættu litlum áhuga fyrir­tækjanna þar sem þau höfðu ekki getuna í að semja við stakt land af álíka stærðar­gráðu og Noreg,“ hefur NRK eftir Høie.

Samkvæmt heilbrigðis­ráðherranum nýtur Þýskaland þó ákveðinna sérréttinda í þessu samstarfi, þar sem landið byrjaði snemma að semja við bóluefna­fram­leiðendur, auk þess sem einn fram­leiðendanna, BioNTech, er þýskt fyrirtæki.

Þrátt fyrir það segir Høie að bólu­setningarnar komi til með að ganga hraðar en búist var við fyrir stuttu síðan, en hann reiknar með að Norðmenn muni ná að bólusetja alla áhættu­hópa þar í landi innan þriggja mánaða. Einnig vonast hann til þess að allir Norðmenn sem vilja verði bólu­settir innan sex mánaða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár