Farið fram á rannsókn á bón Trump um framlög frá Íslandi

Donald Trump vill verða næsti forseti Bandaríkjanna.
Donald Trump vill verða næsti for­seti Banda­ríkj­anna.

Nokkur samtök, sem hafa eftirlit með kosninga­framlögum í Banda­ríkjunum, hafa sent kvörtun til kjör­stjórn (e. Federal Election Commission) vegna tölvu­pósta sem Donald Trump, sem að öllum líkindum verður forseta­fram­bjóðandi Repúblikana­flokksins, sendi erlendum þing­mönnum og embættis­mönnum þar sem hann óskaði eftir styrkjum við framboð sitt. Á meðal þeirra sem fengu póst frá Trump voru Katrín Jakobs­dóttir, formaður Vinstri grænna, Vigdís Hauks­dóttir, þingmaður Framsóknar­flokksins og formaður fjár­laganefndar, og Bjarkey Olsen Gunnars­dóttir, þingmaður Vinstri grænna.

Á vef Bloomberg er haft eftir Paul S. Ryan, eins stjórn­enda samtakana Campaign Legal Center sem eru á meðal þeirra sem standa að kvörtuninni, að augljóst sé að tölvu­póstsendingar Trump til ráðamanna annarra landa, á opinber netföng þeirrra, brjóti í bága við alríkislög. „Þrátt fyrir það þá er þetta nákvæmlega það sem Trump hefur ítrekað gert.“ Fréttir hafa verið sagðar af þing­mönnum í Skotlandi, Íslandi, Englandi og Ástralíu sem hafi fengið tölvu­pósta frá Trump þar sem bað viðkomandi um að styrkja framboð sitt. „Hjálpið mér að gera fyrsta fjár­söfnunar­tölvu­póstinn sem ég hef nokkru sinni sent út að árangurs­ríkasta fjár­söfnunar­tölvupósti sem hefur nokkru sinni verið sendur út í sögu nútíma stjórn­mála," stóð pósti sem barst íslenskum þing­mönnum. Þar óskaði Trump eftir framlögum frá 1-2.700 dali og bauðst til að styrkja viðkomandi um sömu upphæð á móti.

Don­ald Trump hefur ítrekað látið hafa eftir sér að hann eigi „ótak­mark­aða“ sjóði sem hann muni nota til að fjár­magna kosn­inga­bar­áttu sína sjálf­ur. Fram­boð hans safnar hins vegar pen­ingum frá almenn­ingi þrátt fyrir þessi orð fram­bjóð­and­ans. Reuters greindi frá því að í maí hafi hann aflað 3,1 milljón doll­ara frá ein­stak­ling­um. Upp­hæð­irnar sem Trump tekst að safna eru hins vegar smá­pen­ingar í sam­an­burði við þær upp­hæðir sem Hill­ary Clint­on, for­seta­fram­bjóð­andi Demókrata, hefur safn­að. Í maí einum saman safn­aði Clinton 26 millj­ónum doll­ara.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár