Trump biður íslenska þingmenn um styrki

Donald Trump segist ætla að fjármagna kosningabaráttu sína sjálfur, en er á sama tíma að óska eftir peningum frá íslenskum þingmönnum.
Donald Trump seg­ist ætla að fjár­magna kosn­inga­bar­áttu sína sjálfur, en er á sama tíma að óska eftir pen­ingum frá íslenskum þing­mönnum. Mynd: EPA

Íslenskum þing­mönnum hefur borist tölvu­póstur frá Donald Trump, for­seta­fram­bjóð­anda Repúblik­ana í Banda­ríkj­unum, þar sem hann óskar eftir styrkjum við fram­boðið sitt. Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, er einn þeirra þing­manna sem hafa fengið slíkt skeyti. Nútíminn greinir frá þessu og full­yrðir að ekki sé um svindl að ræða.

Donald Trump hefur ítrekað látið hafa eftir sér að hann eigi „ótak­mark­aða“ sjóði sem hann muni nota til að fjár­magna kosn­inga­bar­áttu sína sjálfur. Framboð hans safnar hins vegar pen­ingum frá almenn­ingi þrátt fyrir þessi orð fram­bjóð­and­ans. Reuters greinir frá því að í maí hafi hann aflað 3,1 milljón doll­ara frá ein­stak­lingum. Upp­hæð­irnar sem Trump tekst að safna eru hins vegar smá­pen­ingar í sam­an­burði við þær upp­hæðir sem Hillary Clinton, for­seta­fram­bjóð­andi Demókrata, hefur safnað. Í maí safn­aði Clinton 26 millj­ónum doll­ara.

[adspot]

Katrín Jak­obs­dóttir seg­ist ekki ætla að verða við ósk Donald Trump enda hafi hún ekki fund­ist mikið til mál­flutn­ings hans koma. Nútíminn hefur póst­inn undir höndum og hefur kannað upp­runa hans. „Póst­ur­inn barst úr tölvu­póst­fangi Trump og tengl­arnir í póst­inum vísa á raun­veru­lega söfn­un­ar­síðu fram­boðs repúblikan­ans orð­ljóta. Það verður því ekki betur séð en að póst­ur­inn hafi borist frá fram­boði Donalds Trump,“ segir í frétt­inni.

Morg­un­blaðið segir svo frá því að Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir, þing­maður Vinstri grænna, hafi einnig fengið póst­inn. Hún ætli ekki heldur að styrkja Trump. Hún hafi setið á kaffi­húsi ásamt Vigdísi Hauks­dóttur, for­manni fjár­laga­nefndar Alþingis, sem hafi líka fengið póst­inn.

Samkvæmt banda­rískum kosn­inga­lögum er for­seta­fram­boðum óheim­ilt að þiggja fé frá þeim sem ekki hafa banda­rískan rík­is­borg­ara­rétt. Donald Trump er því hugs­an­lega að fara á svig við kosn­inga­lög þar í landi með því að senda styrk­beiðnir á íslenska þing­menn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár