Gengi bréfa Twitter hrynur

Samfélags­miðla­veldi hafa hrunið í verði undan­farna daga.

Gengi hluta­bréfa Twitter hrundi um 20 prósent í dag. Ástæðan er rakin til þess að virkum notendum Twitter fækkaði um eina milljón á öðrum ársfjórðungi, en þeir eru nú 335 milljónir.

Þrátt fyrir að Twitter hafi hagnast um 100 milljónir Bandaríkja­dala á fjórðunginum, þá þykir það mikið áfall fyrir fyrir­tækið að notendum þess hafi fækkað, að því er segir í umfjöllun breska ríkis­útvarpsins BBC.

Gífurlega hraður vöxtur notenda samfélags­miðla á undan­förnum árum hefur verið drif­krafturinn að baki starfsemi þeirra, en Twitter hefur lengst af ekki sýnt hagnaðar­tölur í sínum rekstri.

Markaðs­virði Twitter er nú rúmlega 27 milljarðar Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 3 þúsund milljörðum króna.

Hrun Twitter kemur í kjölfarið á svipuðu hruni á markaðs­virði Facebook, en um 119 milljarða Bandaríkja­dala verðmæti hafa gufað upp með mikilli lækkun Facebook undan­farna tvo daga. Verðmiði félagsins er nú rúmlega 600 milljarðar Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 63 þúsund milljörðum króna. Notendur Facebook er rúmlega tveir milljarðar manna um allan heim.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár