Strætó í kröggum og telur sig þurfa 750 milljóna aukaframlag frá eigendum

Framkvæmda­stjóri Strætó segir að til þess að geta sinnt nauðsyn­legum fjár­festingum og náð sjálf­bærum rekstri þurfi fyrir­tækið um 750 milljóna króna auka­framlag til rekstursins á þessu ári frá eigendum sínum. Eigenda­fundur fer fram í byrjun september.

Jóhannes S. Rúnarsson framkvæmdastjóri Strætó bs.
Jóhannes S. Rún­ars­son fram­kvæmda­stjóri Strætó bs. Mynd: Strætó bs.

Eigendur Strætó, sveitar­félögin á höfuð­borgar­svæðinu, þyrftu að leggja félaginu til um 750 milljónir króna aukalega á ársgrundvelli til þess að félagið gæti ráðist í nauðsynlegar fjár­festingar í vagna­flota og þar með talist í sjálf­bærum rekstri, að sögn Jóhannesar S. Rúnars­sonar framkvæmda­stjóra Strætó.

Jóhannes segir í samtali við Kjarnann að þetta sýni grófir útreikningar sem gerðir hafi verið innan fyrir­tækisins.

Á stjórnar­fundi Strætó um miðjan mánuðinn var bág fjárhags­staða Strætó til umræðu og þeirri spurningu varpað fram til stjórnar­manna, kjörinna fulltrúa í sveitar­félögunum sex sem eiga Strætó, hversu mikið fé sveitar­félögin gætu lagt Strætó aukalega til á þessu ári.

Jóhannes segir að umræður og viðræður um þetta séu í gangi og að eigenda­fundur muni fara fram í byrjun september þar sem þessi mál verða rædd frekar.

Á þessu ári hefur Strætó þegar fengið framlög frá eigendum greidd fyrirfram, með þeim hætti að í tvöfalt mánaðarlegt framlag var greitt einn mánuðinn, til þess að Strætó hefði handbært fé til þess að spila úr. Það þýðir að í raun er búið að greiða framlagið sem til stóð að yrði greitt út í desember­mánuði til Strætó nú þegar.

Rekstrartap Strætó var 599 milljónir króna á fyrstu sex mánuðum ársins, en áætlanir gerðu ráð fyrir því að tapið yrði 116 milljónir króna. Í árshluta­reikningi Strætó segir að lakari afkoma skýrist einkum af því að sú tekju­aukning sem fjárhags­áætlun tíma­bilsins gerði ráð fyrir hafi ekki skilað sér, sem meðal annars megi rekja til áhrifa heims­faraldursins.

Fargjalda­tekjur, sem jukust þó um 12 prósent á milli ára, voru 97 milljónum undir áætlun og rekstrar­kostnaður 325 milljónum yfir áætlun, að undanskildri Pant aksturs­þjónustunni.

Hærri rekstrar­kostnaður en gert var ráð fyrir er sagður skýrast af því að niður­skurður sem gert var ráð fyrir í upphafi árs hafi ekki komið til framkvæmda fyrr en í apríl, auk þess sem aðfanga­kostnaður hafi hækkað og yfirvinna aukist.

Undir lok júní var handbært fé Strætó 733 milljónir króna, en þar af voru 400 milljónir króna eyrna­merktar fyrir­huguðum vagna­kaupum og 347 milljónir króna voru fyrir­framgreitt framlag eigenda.

Hvaðan koma tekjur Strætó?

Á árinu 2021 námu tekjur Strætó, fyrir utan tekjur af aksturs­þjónustunni Pant, 7,28 milljörðum króna.

Þar af var framlag eigendanna, sveitar­félaganna sex, tæpir 4,06 miljarðar. Auk þess nam framlag ríkisins tæpum 1,03 milljörðum.

Fargjalda­tekjur síðasta árs námu 1,84 milljörðum og aðrar tekjur fyrir­tækisins 351 milljón króna.

Reykja­víkurborg er lang­stærsti eigandi Strætó bs. og á 60,3 prósent í fyrir­tækinu. Kópa­vogsbær á 14,6 prósent, Hafnar­fjarðarbær 12,5 prósent, Garðabær 6,24 prósent, Mosfellsbær 4,07 prósent og Seltjarnar­nesbær 2,29 prósent.

Rekstrar­framlög til fyrir­tækisins eru oftast nær greidd í réttu hlutfalli við eignar­hlutinn.

Það þýðir að ef Strætó fengi 750 milljóna aukin framlög á árinu myndi Reykja­víkurborg greiða rúmar 452 milljónir af þeirri upphæð. Kópa­vogsbær myndi greiða 109,5 milljónir, Hafnar­fjörður 93,75 milljónir, Garðabær 46,8 milljónir, Mosfellsbær tæpa 31 milljón og Seltjarnar­nesbær rúmar 17 milljónir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár