Geðlæknir um frumvarp heilbrigðisráðherra: „Geðsjúklingar drepnir“

Geð­lækna­fé­lag Íslands og Geðhjálp vara ein­dregið við auk­inni greiðslu­þátt­töku sjúk­linga. Lára Halla Maack, geð­læknir og rétt­ar­læknir, vill að frum­varp­inu verði hent út um glugg­ann.

„Geð­sjúk­lingar drepnir,“ segir í umsögn Láru Höllu Maack, geð­læknis og rétt­ar­læknis, um frum­varp Krist­jáns Þórs Júl­í­us­sonar, heil­brigð­is­ráð­herra, um breyt­ingar á kostn­að­ar­þát­töku sjúk­linga. „Geð­læknar utan Land­spít­ala halda að jafn­aði utan um ótal fár­veika sjúk­linga. Fólk í lífs­hættu. Nýja greiðslu­kerfið mun koma í veg fyrir að fár­veikt, inn­sæ­is­laust fólk fari til geð­læknis eða heim­il­is­læknis. Það er of dýrt að drepa sig ekki,“ útskýrir Lára.

Á þriðja tug umsagna hafa borist Alþingi og nær allir umsagn­ar­að­ilar vara ein­dregið við því að frum­varpið verði að lögum, enda muni það leggja auknar byrðar á lang­flesta sem þurfa á heil­brigð­is­þjón­ustu að halda. Umsögn Láru er í 9 liðum. Telur hún meðal ann­ars að í frum­varp­inu felist „dulin / flókin / óskilj­an­leg leið til þess að hækka upp­hæð sjúk­linga upp í afslátta­númer“. Þannig muni nær allir þurfa að borga miklu meira og hætta að fara til læknis áður en þeim batnar. „Skárra að láta dánkast eða drep­ast,“ skrifar hún. Nið­ur­staða Láru er þessi: „Hendið þessu frum­varpi út um glugg­ann og byrjið upp á nýtt. Og sjálf­stæð­is­menn: Ekki kenna Pétri Blöndal um þetta frum­varp – ekk­ert í þessu frum­varpi byggir á hans hug­myndum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár