Tryggt að foreldrar geti fylgt börnum í COVID-bólusetningu

Heilsu­gæslan hefur óskað eftir því að skóla­starf verði fellt niður eða skert daginn sem bólu­setning 5-11 ára barna fer þar fram í byrjun janúar. Það er gert vegna sóttvarna­sjónarmiða „en líka til að lágmarka samanburð milli barna“.

Bólusett verður í einn dag í hverjum skóla, sautján skólum á dag.
Bólusett verður í einn dag í hverjum skóla, sautján skólum á dag. Mynd: EPA

Stefnt er að því að COVID-bólu­setning barna á aldrinum 5-11 ára fari fram í skólum á höfuð­borgar­svæðinu dagana 10.-14. janúar. Bólusett verður í sautján skólum á hverjum degi. Tryggt verður að eitt foreldri eða annar forsjár­aðili geti fylgt hverju barni í bólu­setninguna. Bólu­setning barna mun einnig fara fram í skólum á lands­byggðinni víðast hvar en á minni stöðum verður bólusett á heilsu­gæslu­stöðvum.

Þetta segir Ragn­heiður Ósk Erlends­dóttir, framkvæmda­stjóri hjúkrunar á Heilsu­gæslu höfuð­borgar­svæðisins, við Kjarnann.

Sóttvarna­læknir ákvað fyrir nokkrum dögum að börnum á aldrinum 5-11 ára verði boðin bólu­setning gegn COVID-19. Hann segir ákvörðunina í samræmi við ákvarðanir í mörgum löndum eins og Danmörku, Írlandi, Austur­ríki, Banda­ríkjunum, Kanada og Ísrael. Auk þess hafi Sóttvarna­stofnun Evrópu­sambandsins bent á fjölmargar ástæður þess að bólusetja börn á þessum aldri.

Ástæðurnar fyrir þeirri ákvörðun að bjóða 5-11 ára börnum bólu­setninguna eru nokkrar, að því er fram kemur í pistli sóttvarna­læknis á síðunni covid.is

Í fyrsta lagi nefnir hann að COVID-19 geti verið alvarlegur sjúkdómur hjá börnum í þessum aldurs­hópi. Nefnir hann máli sínu til stuðnings að í samantekt Sóttvarna­stofnunar Evrópu­sambandsins sem gefin var út í byrjun desember komi fram að 0,6 prósent 5-11 ára barna sem sýkjast af COVID og fá einkenni þurfi að leggjast inn á spítala og að 10 prósent þess hóps þurfi á gjörgæslu­meðferð að halda. Ennfremur er það niður­staðan í saman­tektinni að 0,006 prósent smitaðra barna látist.

„Ef ofan­greindar tölur eru yfir­færðar á íslensk börn á aldrinum 5-11 ára og öll börn á þeim aldri myndu smitast (32.000), þá gætum við búist við að 134 börn þyrftu að leggjast inn á sjúkrahús, 13 legðust inn á gjörgæslu­deild og eitt barn myndi látast vegna COVID-19,“ skrifar Þórólfur Guðnason sóttvarna­læknir. (Setningin hefur verið uppfærð í kjölfar nýrrar færslu hans á covid.is)

Þá tekur hann einnig fram að virkni bólu­setningar hjá börnum í þessum aldurs­hópi sé góð og veiti um 90 prósent vörn gegn því að smitast og fá einkenni.

Ekkert hægt að fullyrða um alvarlegar aukaverkanir

Alvarlegar aukaverkanir eftir bólu­setningu 5-11 ára barna hafa enn ekki verið tilkynntar en Þórólfur bendir þó á að á þessari stundu hafi ekki mörg þeirra verið bólusett og því ekki hægt að fullyrða með vissu hvort alvarlegar aukaverkanir muni sjást. Hjá eldri börnum hafi bólgum í hjarta­vöðva og/eða gollur­húsi verið lýst hjá einum af hverjum 10 þúsund bólu­settum. „Ef tíðni alvarlegra aukaverkana COVID-19 og bólu­setningar er yfirfærð frá aldurs­hópnum 12-16 ára yfir á aldurs­hópinn 5-11 ára á Íslandi, þá má búast við að 32 fengju hjarta­vöðvabólgu eftir COVID-19 en einungis 2 börn eftir bólu­setningu. Að auki má búast við öðrum alvarlegum auka­verkunum eftir COVID-19 sem ekki sjást eftir bólu­setninguna,“ skrifar Þórólfur.

HÉR GETUR ÞÚ LESIÐ ÍTARLEGAN PISTIL HANS UM VÍSINDIN AÐ BAKI ÁKVÖRÐUNINNI.

Ragn­heiður Ósk segir útfærslu framkvæmdar við bólu­setningu barnanna óðum vera að skýrast. „Hér á höfuð­borgar­svæðinu hafa skóla­hjúkrunar­fræðingar verið að útfæra skipulag, og stað­setningu í hverjum skóla fyrir sig í samráði við skóla­stjórnendur þessa vikuna.“

Áætlað er að senda foreldrum upplýsingar frá skóla­heilsu­gæslunni á höfuð­borgar­svæðinu um dagsetningu og skipulag hvers skóla þann 4. janúar. Boð á alla forsjár­aðila á landinu verða send miðlægt frá sóttvarnar­lækni 6.-7. Janúar ef áform standast. Í þeim skila­boðum verður tengill á vefsíðu þar sem forsjár­aðilar skrá barn sitt í bólu­setningu og hafa þar einnig tækifæri til að skrá leyfilega fylgdar­menn. Við þessa skráningu fá forsjár­aðilar sent strika­merki sem þau mæta með í bólu­setninguna.

„Hér á höfuð­borgar­svæðinu og víða á lands­byggðinni þar sem skólarnir eru mjög stórir erum við að óska eftir því að skóli verði felldur niður bólu­setningar­daginn, eða þá allavega skertur skóla­dagur,“ segir Ragn­heiður. Það sé gert vegna sóttvarnar­sjónarmiða „en líka til að lágmarka samanburð milli barna“.

Fræðlsuefni fyrir börn og fullorðna í smíðum

Spurð hvort hún telji þörf á því að miðla sérstak­lega og ítarlega upplýsingum, m.a. vísinda­legum gögnum, til foreldra og annarra forráða­manna um bólu­setningar barna svarar hún því játandi. Verið sé að vinna að fræðslu­efni á vegum sóttvarna­læknis. Þær upplýsingar verða á um 16 tungu­málum, segir Ragn­heiður.. „Auk þess verður sérstakt fræðslu­efni unnið fyrir börn sem foreldrar geta skoðað með börnum sínum. Allt þetta er væntanlegt innan skamms á covid-síðuna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár