Obama: Fólk lifir í „sínum veruleika“ á samfélagsmiðlum

Barack Obama segir að samfélags­miðlar hafi ýtt undir fordóma hjá fólki. Þeir séu varasamir, og fólk verði að tala í hefðir um hefð­bundin samskipti en ekki aðeins lifa í veröldinni á internetinu.

Barack Obama, fyrr­verandi forseti Banda­ríkjanna, segir í viðtali sem Harry Breta­prins tók við hann, fyrir breska ríkis­útvarpið BBC, að óábyrg notkun samfélags­miðla sé hættuleg samfélögum. Hann hvetur þá sem eru leiðtogar, hvar sem þeir eru í samfélaginu, til þess að beita sér fyrir því að opin og upplýst umræða geti fundið sér farveg á internetinu á nýjan leik. Þannig sé raunin ekki núna, og hætturnar séu augljósar.

„Ein af hættunum við internetið þessi misserin, er að fólk getur lifað í algjör­lega ólíkum veruleika. Upplýsinga­flæðið, innan þess ramma sem skapast hjá hverjum og einum, er að ýta undir fordóma hjá fólki,“ segir Obama.

Hann segir að það þurfi að finna leiðir til nota þessa tiltölu­lega nýju tækni með ábyrgari hætti, þannig að heilu samfélögin klofni ekki vegna rangra eða misvísandi upplýsinga um hin ýmsu mál.

Hann segir einnig að fólk verði að geta skilið á milli veraldarinnar á samfélags­miðlunum og síðan í hinu daglega lífi. „Fólk kemst oft að því, að þegar það hittist eftir að hafa kynnst á samfélags­miðlunum, að hlutirnir eru flóknari en þeir virtust,“ segir Obama.

Hann segir samfélags­miðlana gefa of einfalda mynd af líðandi stund, og fólk verði að passa sig á því. Fólki eigi að hittast á barnum, í hverfunum og halda í þá hefð að kynnast almennilega „maður á mann“.

Mikil umræða hefur átt sér stað víða um heim um áhrif samfélags­miðla á samfélögin, og lét fyrr­verandi framkvæmda­stjóri hjá Facebook, Chamath Palihapitiya, hafa eftir sér á ráðstefnu Stanford háskóla, sem The Verge greindi frá, að Facebook væri að „tæta samfélög í sundur“. Upplýsinga­flæðið og samskiptin sem ættu sér stað á Facebook væru að gjör­breyta samfélögum, og þá til hins verra. Miðlarnir væru ávana­bindandi og umræðan á þeim væri villandi og grunn, og ýtti undir öfgar og fordóma.

Óhætt er að segja að uppgangur samfélags­miðla hafi verið ótrúlega hraður.

Á síðustu tíu árum, samhliða hraðri útbreiðslu snjall­síma, hefur notenda­fjöldi samfélags­miðla marg­faldast.

Facebook er sá miðill sem hefur áð mestri fótfestu en virkir notendur voru um tveir milljarðar um heim allan, um mitt þetta ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár