Rómafólkið í Kaupmannahöfn

Ríkis­stjórn Danmerkur bregst við bréfi sem borgar­stjóri Kaupmanna­hafnar skrifaði forsætis­ráðherra og lýsti vaxandi vanda vegna fjölgun heimilis­lausra í borginni.

Sem kunnugt er geta borgarar þeirra Evrópu­sambands­landa sem eru aðilar að Schengen-samkomu­laginu um frjálsa för ferðast hindrunar­laust milli landanna á Schengen-svæðinu og dvalist í allt að þrjá mánuði í hverju landi.

Að undan­förnu hefur fólki sem kemur frá Austur-Evrópu til Danmerkur fjölgað mjög. Einkum er um að ræða svonefnt Rómafólk, Rómana, þann hóp fólks sem áður kölluðust sígaunar. Fólk sem hefur ekki fasta búsetu, né vinnu, en fer stað úr stað, land úr landi og lifir á betli og ýmis konar snöpum. Tala sitt eigið tungumál, romani.

Uppruninn er óljós

Uppruni Rómana er mjög óljós og þar hafa lengi verið ýmsar kenningar á lofti. Margir sagn­fræðingar hallast nú að því að Rómanar hafi upphaf­lega komið frá Indlandi til Evrópu, sennilega á 11.öld. Þeir hafi alla tíð verið fyrir­litnir (og áður fyrr jafnvel rétt­dræpir), enginn hafi kært sig um þá og þeir iðulega verið flæmdir á brott þaðan sem þeir höfðu komið sér fyrir og þannig flækst landúr landi.

Á valdatíma nasista í Þýska­landi er talið að ein milljón Rómana, að minnsta kosti, hafi verið teknir af lífi. Spán­verjar sendu þúsundir Rómana í sérstakar búðir á stríðs­árunum. Svíar og Danir skrásettu á stríðs­árunum Rómana ásamt mynd að viðkomandi og ýmsum persónu­upplýsingum. Í dönsku skráningar­skýrslunni er sígaunum (eins og það var orðað) lýst sem samfélags­legu vandamáli.

Í skýrslu Sameinuðu þjóðanna (SÞ) frá árinu 2004 kom fram að árið 1999 hefði verið kveikt í 14 þúsund húsum í Kosovo, þar sem Rómanar bjuggu og þau brennd til grunna. Í Kosovo bjuggu á þeim tíma 150 þúsund Rómanar og samkvæmt skýrslu SÞ flýðu 80 prósent þeirra vegna ofsókna sem þeir sættu í kjölfar átakanna í Kosovo. Þessi örfáu dæmi sýna að Rómanar hafa lengi mátt sæta margs konar niður­lægingu og alla tíð lifað í mikilli fátækt.

6 milljónir í löndum ESB

Stríðs­átök og umrót í Evrópu áratugum saman á liðinni öld gerðu Rómönum erfitt fyrir. Þeir höfðu haft þann háttinn á að þegar þeir voru flæmdir á brott þaðan sem þeir höfðu komið sér fyrir færðu þeir sig um set og settu sig niður. Flest, eða nær öll, lönd Austur og Vestur-Evrópu kröfðust þess að íbúar hefðu fasta búsetu. Mörg lönd brugðu á það ráð að neyða Rómana til búsetu í tilteknum hverfum (fátækra­hverfum) þar sem mikill fjöldi þeirra býr enn í dag.

Engar áreiðanlegar upplýsingar eru til fjölda Rómana en talið að innan landa Evrópu­sambandsins geti þeir verið allt að 6 milljónir, fleiri en til dæmis íbúar Danmerkur. Þegar Búlgaría og Rúmenía fengu aðild að Evrópu­sambandinu, og Schengen, árið 2007 var, eins og áður var getið, auðveldara að fara milli landi, og það gilti auðvitað um Rómana líkt og aðra.

Sækja til Danmerkur

Eins og áður var nefnt hefur Rómönum fjölgað mjög í Kaupmanna­höfn á undan­förnum mánuðum. Þar hafa þeir lifað á því að hirða flöskur og dósir og fá tekjur af skila­gjaldinu. Vasa­þjófnuðum hefur fjölgað mikið í borginni og borgar­yfirvöld telja engan vafa á að Rómanar eigi þar oft hlut að máli. Margir smákaupmenn banna Rómönum að koma inn fyrir dyr, segja að þeir steli úr hillunum. Margir Rómanar reyna að lifa á betli, sitja á strætum og torgum, við dyr verslana og víðar.

Þótt betl sé bannað með lögum í Danmörku eru þess einungis örfá dæmi að dæmt hafi verið vegna slíks. Áður en hægt er að kæra einstakling fyrir betl þarf viðkomandi fyrst að hafa fengið áminningu, viðvörun. Til þess að veita slíka áminningu þarf lögreglan að vita nafn viðkomandi og ekki er ætíð auðvelt að fá það upplýst.

Enginn veit hve margir Rómanar halda sig á Kaupmanna­hafnar­svæðinu en þeir skipta, að mati borgar­yfirvalda, mörgum hundruðum og eru ekki aufúsu­gestir. Undan­farið hefur mikið verið fjallað um þá í dönskum fjöl­miðlum og áðurnefnt bréf Frank Jensens, yfir­borgar­stjóra Kaupmanna­hafnar, til forsætis­ráðherrans varð til þess að vekja athygli fjölmargra þingmanna.

Þing­mönnum Danska þjóðar­flokksins hefur reyndar um margra mánaða skeið verið tíðrætt um „þessa plágu“ eins og þeir orða það gjarnan og hafa margoft kvartað yfir aðgerða­leysi lögreglu og yfirvalda.

Svæði umhverfis kirkjur vinsælir dvalarstaðir

Við Strikið í Kaupmanna­höfn, nokkurn veginn miðja vegu milli Kóngsins Nýjatorgs og Ráðhúss­torgsins stendur Heilagsanda­kirkjan. Í garðinum við kirkjuna hefur hópur Rómana hafst við um nokkurt skeið. Þessu fólki fylgir mikill óþrifnaður og alls konar drasl um allan garð og þótt starfs­fólk kirkjunnar geri sitt besta til að fjarlægja það dugir það ekki til. Rómanarnir gera líka stykki sín, stór og smá í garðinum og því fylgir mikill óþrifnaður. Starfs­fólki kirkjunnar hefur verið boðin bólu­setning gegn lifrar­bólgu, í öryggis­skyni.

Við Maríu­kirkjuna á Istedgade, skammt frá Aðal­járn­brautar­stöðinni hefur hópur Rómana hreiðrað um sig. Verslunar­eigandi í næsta nágrenni kirkjunnar sagði í viðtali að hópurinn færi sístækkandi, kannski væri ástæðan sú að starfs­fólk kirkjunnar hefði sýnt fólkinu vinsemd, leyft því að hlaða síma, gefið því kaffi og jafnvel mat. Verslunar­eigandinn segir að návist Róma­fólksins hafi mikil áhrif á viðskiptin, mun færri kúnnar komi nú í búðina. Svipaða sögu er að segja frá fleiri kirkjum í Kaupmanna­höfn, meðal annars Frúar­kirkjunni í gamla háskóla­hverfinu. Opin og auð svæði, gjarnan svolítið úr alfara­leið eru líka vinsælir dvalar­staðir Róma­fólksins.

Ný og strangari lög

Fyrir nokkrum dögum tilkynnti Lars Løkke Rasmussen forsætis­ráðherra að hann myndi leggja fyrir þingið frumvarp um strangari viðurlög við betli, þegar eru í gildi lög sem banna fólki að sofa á götum og opnum svæðum. Ráðherrann greindi frá því í umræðum á síðasta eiginlega fundar­degi þingsins, Folketinget, að á fundi þing­flokks­formanna hefði náðst samkomulag um að frumvarp þetta fengi „flýti­meðferð með afbrigðum“ eins og hann orðaði það og yrði að lögum 14. júní. Fram kom í máli ráðherrans að refsing við betli, „utryghedsskabende tiggeri“ yrði 14 daga óskilorðsbundið fangelsi. Einnig verður fólki óheimilt að koma aftur á svæði þar sem það hefur áður verið sektað fyrir að hafast við.

Yfir­borgar­stjórinn í Kaupmanna­höfn fagnar þessum viðbrögðum stjórnarinnar en sagðist, í viðtali við Kristeligt Dagblad, álíta að Evrópu­sambandið yrði að móta einhverja stefnu í málefnum Rómafólks. 1. apríl síðastliðinn tóku reyndar gildi lög sem heimiluðu lögreglu að rýma svæði þar sem fólk hefði komið sér fyrir í leyfis­leysi. Lögreglan hefur, síðan lögin tóku gildi, rýmt samtals 25 svæði og gefið út rúmlega 120 ákærur, sem leiða til sekta. Að sögn lögreglu er stærstur hluti þessa hóps kominn frá Rúmeníu.

Herferð gegn tilteknum hópi

Ekki eru allir jafn hrifnir af þessum nýju lögum. Preben Brandt formaður samtak­anna „Udenfor“ sem berst fyrir réttindum minnihluta­hópa segir þessu nýja frumvarpi augljós­lega beint gegn Róma­fólkinu, og kallar norna­veiðar. „Og hvað þýðir þetta sem forsætis­ráðherrann kallar „utryghedsskabende tiggeri“ skapar það óöryggi að karl sitji á kassa, með betlidollu fyrir framan sig og spili á harmonikku? Nær væri að grípa til raunhæfra aðgerða“ sagði Preben Brandt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár