Bandaríkin beina spjótunum að eignum Venesúela og hóta eignaupptöku

Greint var frá því í dag að Bandaríkja­stjórn væri nú að beita sér með þeim hætti, að færa auð og fjármagn frá forseta Venesúela til helsta andstæðings hans.

Bandaríkja­stjórn vinnur nú að því að beita efnahags­þvingunum til að ýta undir stjórnar­skipti í Venesúela, meðal annars með því að færa stjórn á olíu­hreinsistöð ríkis­fyrirtækis Venesúela, Citgo, til Juan Guaidó, helsta stjórnar­andstæðings Maduro forseta.

Frá þessu greindi Washington Post í dag, en fjármála­ráðuneyti Steven Munchin sendi frá sér tilkynningu þar sem segir að þvingunum verði beitt, og meðal annars lagt hald á eignir sem tilheyra stjórn­völdum í Venesúela, ef þörf þykir.

Banda­ríkin hafa lýst því yfir að þau viðurkenni Guaidó sem forseta Venesúela og hafa heitið því að breðast við af hörku, ef Maduro reynir að fara gegn vilja Bandaríkjana, hvort sem það er í Venesúela eða annars staðar.

Maduro hefur þegar svarað tilkynningu bandarískra stjórn­valda, og sagt að Citgo sé eign ríkis­sjóðs Venesúela og enginn geti tekið ákvörðun um ráðstöfun þeirra eigna nema stjórn­völd í Venesúela.

Citgo er með erlendar höfuð­stöðvar í Banda­ríkjunum, nánar tiltekið í olíu­ríkinu Texas. Samkvæmt skrifum Washington Post er ekki vitað með vissu, hversu miklar eignir sem tilheyra ríkis­sjóði Venesúela eru utan ríkisins, en megnið af þeim er í Banda­ríkjunum, og í olíu­tengdum iðnaði.

John Bolton, þjóðar­öryggis­ráðgjafi Donalds Trumps Bandaríkja­forseta, hefur sagt að yfirráð eigna verði að fara frá Maduro og til Guaidó. Ekki sé hægt að viðurkenna eða styðja stjórn­völd í Venesúela undir stjórn Maduro, enda sé efnahagur landsins í rúst.

Í skrifum Washington Post kemur einnig fram, að stjórn Maduro hafi á undan­förnum mánuðum gjör­breytt viðskiptum Citgo, sem hefur til þessa selt mikið af olíu til Banda­ríkjanna. Í staðinn er fyrir­tækið nú að einblína á Evrópu og Asíu, með Kínverja sem helstu kaupendur.

Skuldir Citgo eru að mestu leyti í eigu banka í Banda­ríkjunum, en rússneska jarðgas- og olíu­fyrirtækið Rosneft er með veð í 49,9 prósent eignarhlutaf þess eftir lán upp á 1,5 milljarða Bandaríkja­dala til ríkis­sjóðs Venesúela, eftir því sem Washington Post greinir frá.

Efnahagur Venesúela einkennist þessi misserin af nær algjöru hruni. Heildar­íbúafjöldi í Venesúela er um 32 milljónir, en talið er að allt að 2,3 milljónir manna hafi flúið erfitt efnahags­ástand í landinu á undan­förnum árum. Óðaverðbólga, mikið atvinnu­leysi og erfið­leikar fyrir­tækja, er það sem helst einkennir stöðu mála, ofan í glundroða í stjórn­málum.

Uppfært: Breska ríkis­útvarpið greindi frá því rétt í þessu, að Bandaríkja­stjórn hefði þegar beitt viðskipta­þvingunum gegn ríkis­olíu­fyrirtæki Venesúela, PDSVA, og beini því til hersins í landinu, að láta stjórnar­skipti í landinu fara frið­samlega fram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár