Fimmtán ríkustu Bretarnir töpuðu 5,5 milljörðum punda á einum degi

Ríkustu Bret­arnir fóru illa út úr svörtum föstu­degi á mörk­uðum.

Hluta­bréfa­mark­aðir fóru víða illa í gær, eftir að frétt­irnar komu fram um nið­ur­stöðu Brexit-kosn­ing­annar í Bret­landi, sem sýndu þjóð­ar­vilja í meiri­hluta fyrir útgöngu úr Evr­ópu­sam­band­inu (ESB). En sér­stak­lega fóru eigna­mark­aðir illa í Bret­landi, þar sem mikið fall punds­ins, um tæp­lega sjö pró­sent, kom til við­bótar við fall á hluta­bréfa­verði.

Þannig töp­uðu fimmtán rík­ustu menn Bret­landseyja jafn­virði um 5,5 millj­örðum punda í gær, eða sem nemur um 935 millj­örðum króna, að því er kemur fram á vef Bloomberg. Það er kald­hæðni örlag­anna að nokkrir þeirra sem eru á þeim lista, voru miklir stuðn­ings­menn þess að Bretland færi úr ESB, og töl­uðu sumir þeirra um að algjör óþarfi væri að ótt­ast fall á eigna­mörk­uðum, þar sem fjár­festar væru búnir undir að brugðið gæti til beggja vona.

Peter Hargr­ea­ves, einn stofn­enda fjár­mála- og ráð­gjafa­fyr­ir­tæk­is­ins Hargr­ea­ves Landsdown, missti 19,6 pró­sent af verð­mæti eigna­safns síns, sam­kvæmt Bloomberg, en það stóð í 2,9 millj­örðum Banda­ríkja­dala í lok dags, samt sem áður, eða sem nemur um 360 millj­örðum króna.

Hargr­ea­ves var sá sem styrkti Leave-her­ferð­ina um mestu fjár­mun­ina, eða sem nemur 3,2 millj­ónum punda, jafn­virði um 550 millj­óna króna. Hann hætti í stjórn Hargr­ea­ves Landsdown í apríl í fyrra, og sagði við það til­efni aðhann væri til­bú­inn að vinna með breskum stjórn­völdum að því að und­ir­búa Bretland fyrir nýja til­veru, eftir að hafa ákveðið að hætta í ESB.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár