Fjárfestar búa sig undir vaxtahækkanir

Búist er við lægðum á hlutabréfa­mörkuðum eftir því sem seðla­bankar víða um heim munu líklega hækka stýri­vexti sína á næstu vikum. Norski olíu­sjóðurinn hvatti einka­fjárfesta til að halda í bréfin sín, þrátt fyrir miklar verðsveiflur.

Hlutabréf gætu orðið fyrir nokkrum skelli í ár, verði boðaðar vaxtahækkanir seðlabanka víða um heim að veruleika.
Hluta­bréf gætu orðið fyrir nokkrum skelli í ár, verði boð­aðar vaxta­hækk­anir seðla­banka víða um heim að veru­leika. Mynd: Pexels

Greiningar­aðilar spá því að Englands­banki muni hækka stýri­vexti sína um 0,25 prósentu­stig á fimmtudaginn, þar sem verð­bólgan þar í landi hefur reynst þrálát . Sömuleiðis er búist við vaxta­hækkunum í Banda­ríkjunum á þessu ári, en þessar væntingar hafa nú þegar skapað óróa á hlutabréfa­markaði.

Minna tillit tekið til fyrirtækja

The Guardian greindi frá vaxta­hækkunar­spám greiningar­aðila í Bretlandi í morgun, en verð­bólgan þar í landi nam 5,4 prósentum í síðasta mánuði. Englands­banki hefur varað við því að verð­hækkanirnar verði enn meiri á næstu mánuðum og að verð­bólgan gæti náð hámarki í um sex prósentum í apríl.

Sérfræðingar hjá EY og Goldman Sachs telja að peninga­stefnu­nefnd Englands­banka muni mæta þessum verð­hækkunum með vaxta­hækkunum á næstu fundum sínum. Einn þeirra bjóst við að stýri­vextirnir verða nálægt 1,25 prósentum þar í landi í lok árs.

Þrátt fyrir að vaxta­hækkanirnar geti aukið á vandamál fyrir­tækjanna sem hafa orðið illa úti í faraldrinum telja greiningar­aðilarnir að peninga­stefnu­nefnd Englands­banka muni taka minna tillit til þeirra á næstunni, þar sem efnahagsleg áhrif kórónu­veirunnar hafa minnkað.

Gustar um markaði

Fjár­festar vestanhafs búast einnig við að Seðla­banki Banda­ríkjanna muni hækka vexti á næstu mánuðum, en verð­bólgan þar í landi náði sjö prósentum í síðasta mánuði og hefur ekki verið hærri í 39 ár. Líkt og Financial Times greinir frá hafa væntingarnar um vaxta­hækkanir nú þegar haft áhrif á verðbréfa­markaði þar í landi, þar sem fjár­mögnunar­kostnaður fyrir­tækja hefur hækkað.

Gustað hefur um bandaríska hlutabréfa­markaði á síðustu vikum, en S&P 500 hlutabréfa­vísitalan er nú átta prósentum lægri en hún var fyrir mánuði síðan. Samkvæmt Financial Times er virði hluta­bréfa hjá tækni­fyrirtækjum sem fóru í hlutafjár­útboð í fyrra nú að meðaltali þriðjungi minna en útboðs­verð þeirra.

Þrátt fyrir þessar vendingar er ekki búist við að Seðla­banki Banda­ríkjanna hverfi frá áformum um vaxta­hækkanir, en markaðs­aðilar gera nú ráð fyrir allt að fimm vaxta­hækkunum vestanhafs á árinu.

Olíusjóðurinn segir fjárfestum að halda

Hlutabréfa­markaðurinn í Noregi hefur einnig verið á niðurleið síðustu vikurnar, en Nicolai Tangen, forstjóri norska olíu­sjóðsins, varaði við storma­sömum tímum á verðbréfa­mörkuðum með verðsveiflum og verð­lækkunum í viðtali við norska miðilinn E24. Sömuleiðis er búist við vaxta­hækkunum þar í landi, en Seðla­banki Noregs hefur varað við 0,25 prósenta hækkun í mars.

Tangen sagði að norski hlutabréfa­markaðurinn hafi fengið marga nýja einka­fjárfesta til sín á síðustu misserum. „Margir þeirra hafa ekki upplifað stórar niður­sveiflur í markaðnum og geta verið óöruggir um hvað þeir ættu að gera þegar það gustar um kaup­hallirnar,“ bætti hann við.

Trond Grande, aðstoðar­forstjóri olíu­sjóðsins, sagði að megin­ráðið til þessara fjárfesta væri að halda kyrru fyrir ef þeir geta það, þar sem verðið gæti sveiflast upp aftur.

Olíu­sjóðurinn á hlutabréf í þúsundir fyrir­tækja um allan heim, sér í lagi í Banda­ríkjunum og í Evrópu. Samkvæmt Tangen gætu verð­hækkanir sem hafa átt sér stað á þessum mörkuðum á síðustu árum gengið til baka ef verð­bólgan heldur áfram að aukast og seðla­bankar bregðast við með vaxta­hækkunum. „Þá er það lítið sem sjóðurinn getur gert,“ segir hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár