Stjórnendur RÚV hafi ekki staðið alveg nógu þétt við bakið á Helga Seljan og fleirum

Útvarps­stjóri ræðir nýjar siða­reglur RÚV í viðtali sem birtist á vef Blaðamanna­félagsins í dag. Þar samsinnir hann því að RÚV hefði mátt standa betur við bakið á frétta­manninum Helga Seljan og fleirum í tengslum við ófrægingar­herferð Samherja.

Stefán Eiríksson útvarpsstjóri.
Stefán Eiríks­son útvarps­stjóri. Mynd: Bára Huld Beck

Stefán Eiríksson útvarps­stjóri telur að stjórn­endur RÚV hafi „kannski ekki staðið alveg nógu þétt við bakið á“ Helga Seljan og fleiri starfs­mönnum fyrir­tækisins sem urðu fyrir barðinu á ófrægingar­herferð útgerðar­fyrir­tækisins Samherja. Þetta segir Stefán í viðtali sem birtist á vef Blaðamanna­félags Íslands í dag.

Í viðtalinu ræðir útvarps­stjóri um nýjar siða­reglur RÚV sem tóku gildi í sumar, en með setningu þeirra var siðanefnd sem starfaði samkvæmt eldri siða­reglum ríkis­fjöl­miðilsins lögð niður.

Umdeilt ákvæði eldri siða­reglna, sem fól í sér að starfs­fólk sem sinnti umfjöllun um fréttir, frétta­tengt efni og tæki ekki opinber­lega afstöðu í umræðu um pólitísk málefni eða umdeild mál í þjóðfélags­umræðunni, þ.á.m. á samfélags­miðlum, er hvergi að finna í nýju reglunum.

Útgerðar­fyrirtækið Samherji kærði í ágúst árið 2020 alls ellefu starfs­menn RÚV fyrir tjáningu á samfélags­miðlum, sem í flestum tilfellum var sett fram vegna myndbands þar sem spjótum fyrir­tækisins var beint að Helga Seljan. Siða­nefndin úrskurðaði Helga einan sekan um brot á reglunum, vegna hluta þeirra ummæla hans á samfélags­miðlum sem Samherji kærði.

Stefán samsinnir því í viðtalinu að stjórn­endur RÚV hefðu mátt standa betur með þeim starfs­mönnum sem „lentu í þessum ótrúlegu hremmingum“ fyrir það að hafa verið að sinna sinni vinnu.

„Það held ég að hafi ekki tengst bara þessum siða­reglum eða þessu tiltekna máli heldur ýmsu öðru, eins og t.d. aðgengi að og afhendingu á gögnum til þessa aðila, sem misnotaði það efni síðan sem varð til þess að við tókum fyrir það að láta efni af hendi í eigin fram­leiðslu þessa fyrir­tækis á „fréttum“,“ er haft eftir Stefáni í viðtalinu.

Vinnureglur fréttafólks og siðanefnd BÍ

Þrátt fyrir að búið sé að leggja niður siðanefnd RÚV og fjarlægja hið umdeilda ákvæði úr siða­reglum miðilsins er það þó ekki svo að engar reglur gildi um tjáningu þeirra starfs­manna sem starfa við fréttir og dagskrár­gerð, en vinnu­reglur RÚV um fréttir og dagskrár­efni tengt þeim voru gefnar út endur­skoðaðar í desember 2020.

„Þarna er réttilega fjallað um að þeir sem vinna hjá RÚV og eru að sinna fréttum og dagskrár­gerð þurfa að gæta að því að það sé hafið yfir allan vafa að þeir séu hlutlægir og óhlutdrægir í sinni umfjöllun og séu ekki að tjá sig opinber­lega, hvort heldur sem er á samfélags­miðlum eða með öðrum hætti, um einhver mál sem viðkomandi er síðan að skrifa um og fjalla um. Um þetta atriði eru allir sammála,“ segir Stefán í viðtalinu.

Þess fyrir utan gilda siða­reglur Blaðamanna­félags Íslands líka um þau sem starfa við frétta­tengda umfjöllun hjá RÚV. „Ég hef engar efasemdir um lögsögu siða­nefndar BÍ um það sem snýr að okkar fólki,“ segir Stefán í viðtalinu, sem lesa má í heild sinni á vef Blaðamanna­félagsins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár