Samningar sagðir vera að nást milli Breta og Evrópusambandsins

Fundað hefur verið stíft í Brussel og einnig í London, síðustu daga. Reynt er til þrautar að ná samningi um forsendur útgöngu Breta úr Evrópu­sambandinu.

Samningar eru sagðir, í breskum fjöl­miðlum, vera að nást á milli stjórn­valda í Bretlandi og forystu Evrópu­sambandsins, um forsendur útgöngu Breta úr Evrópu­sambandinu, sem dagsett er 31. október næst­komandi.

Samkvæmt skrifum The Telegraph er Boris Johnson, forsætis­ráðherra Breta, sagður hafa kynnt helstu atriði, sem náðst hefur saman um, fyrir helstu andstæðingum fyrri samninga innan Íhalds­flokksins sem breska þingið hefur hafnað.

Afar erfiðlega hefur gengið að ná saman um samning fyrir útgöngu Breta, og þurfti Theresa May að lokum að hætta sem forsætis­ráðherra, eftir að breska þingið hafnaði ítrekað þeim samningi sem lagður var í atkvæði þingsins.

Johnson hefur sagt að það komi ekki til greina að bíða lengur með útöngu en til 31. október. Aðal­samninga­maður Evrópu­sambandsins, Michel Barnier, lét hafa eftir sér í gær, að nú þyrfti að ná góðum málum, sem samkomulag hefði náðst um, niður í lagatexta sem allir gætu sætt sig við.

Þá sýndu fjármála­markaðir merki þess, að von væri um samning, og styrktist gengi pundsins gagnvart bæði Bandaríkjadal og evru, um 1,5 prósent, sem þykir mikið innan dags.

Samkvæmt skrifum breska ríkis­útvarpsins BBC hefur mikið verið lagt upp úr því að halda helstu efnis­atriðum þétt að þeim sem eru að sinnan samninga­viðræðunum, en helstu niður­stöður verða kynntar fyrir forystu Evrópu­sambandsins í dag, miðvikudag. Málið kemur síðan til kasta breska þingsins á næstunni, ef samkomulag næst.

Umtals­verðir hagsmunir eru í húfi fyrir Ísland, en Bretland er með stærstu viðskipta­þjóðum Íslands, þegar kemur að vörum og þjónustu. Bretland er stærsta viðskipta­landið þegar kemur að sjávar­afurðum og meðal stærstu viðskipta­þjóða þegar kemur að ferða­þjónustu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár