Facebook bannar AIQ sem var í lykilhlutverki í Brexit-baráttunni

Kanadískt fyrirtæki sem aflaði gagna á samfélags­miðlum, og notaði til að reyna að fá fólk til að kjósa með útgöngu úr Evrópu­sambandinu í Bretlandi hefur verið bannað af Facebook.

Kanadíska fyrir­tækið AIQ, sem vann með Cambridge Analytica í Brexit-kosninga­baráttunni í Bretlandi, hefur verið bannað af Facebook og má fyrir­tækið ekki vinna með gögn sem aflað er í gegnum Facebook.

Frá þessu greinir breska ríkis­útvarpið BBC. AIQ fékk greiddar 3,8 milljónir punda frá Vote Leave hreyfingunni, sem barðist fyrir því að Bretar færu úr Evrópu­sambandinu.

Fyrir­tækið er sagt hafa komist yfir gögnum um notendur á Facebook, með hætti sem ekki samræmist skilmálum Facebook og því hefur verið gripið til þessara aðgerða. Facebook vinnur nú að innan­húsrannsókn á því hvernig Cambridge Analytica, og fleiri fyrirtæki sem það hefur starfað með, hefur unnið með gögnum notendur á Facebook, en samfélagsmiðlarisinn hefur sagt að upplýsingar um tæplega 90 milljónir notenda, að langmestu leyti í Banda­ríkjunum, hafi komist til Cambridge Analytica og fleiri fyritækja með hætti sem ekki samræmist skilmálum Facebook.

Þá eru í nú í gangi opinberar rann­sóknir á meðhöndlun persónu­upplýsinga hjá fyrr­nefndum fyrir­tækjum - og Facebook einnig - bæði í Bretlandi og Banda­ríkjunum, en það sem ýtti þeim af stað var umfjöllun Cambridge Analytica, en fyrir­tækið hefur meðal annars unnið með framboði Donalds Trumps í Banda­ríkjunum og Brexit-hreyfingunni í Bretlandi.

Mark Zuckerberg, forstjóri og stofnandi Facebook, kemur fyrir þingnefnd í Banda­ríkjunum 11. apríl næst­komandi, og mun þar svara spurningum um persónu­vernd og fleira sem snýr að því hvernig farið er með upplýsingum um notendur miðilsins.

Á heimsvísu eru notendur nú orðnir fleiri en 2 milljarðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár