Sjötta kjarnorkusprengjan sprengd

Norður-Kórea heldur áfram að ögra alþjóða­samfélaginu og hefur nú sprengt kjarnorku­sprengja sem virðist hafa verið mun öflugri en fyrri sprengjur.

Kim Jong Un, leiðtogi Norður-Kóreu, fagnar kjarna­orku­vopna­tilraun landsins í nótt, að því er fram kemur á vef BBC. Öryggisráð Suður-Kóreu hefur verið kallað saman, og her landsins er í viðbragðs­stöðu.

Kjarn­orku­vopna­tilraun Norður-Kór­eu í nótt er í það minnsta fimm sinnum öfl­ugri en sú síðasta en sjötta kjarn­orku­vopna­tilraun þarlendra stjórn­valda var gerð í nótt. Skjálft­inn frá kjarn­orku­spreng­ing­unni mæld­ist 6,3 stig.

Upp­tök skjálft­ans eru sögð hafa verið í norður­hluta Norður-Kóreu en þar er helsta eld­flauga­tilrauna­svæði lands­ins, Punggye-ri.

Talið er að miðað við stærð skjálft­ans í sept­em­ber hafi sprengj­an verið um 10 kílót­onn. Það er tæp­lega tvö­föld stærð síðustu kjarn­orku­vopna­til­raun­ar Norður-Kór­eu en held­ur minni en atóm­sprengj­an sem Banda­ríkja­menn létu falla á Hiros­hima en sú var 15 kílót­onn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár