Vararíkissaksóknari: „Væntanlega eru þessir menn múslímar“

Helgi Magnús Gunnarsson vara­ríkis­saksóknari lætur presta þjóð­kirkjunnar heyra það á Facebook vegna framtaks Laugar­neskirkju til stuðnings tveimur hælis­leitendum frá Írak.

Helga Magnúsi Gunnars­syni vara­ríkis­saksóknara er gróflega misboðið vegna þess stuðnings sem Laugar­neskirkja sýndi tveimur írökskum hælis­leitendum sem vísað var úr landi í síðustu viku. Hann telur réttast að Toshiki Toma, prestur innflytjenda, og Kristín Þórunn Tómasdóttir, sóknar­prestur í Laugar­neskirkju, verði áminnt vegna málsins.

Embættis­maðurinn tjáir sig frjáls­lega um framtak Laugar­neskirkju á Facebook og spyr hvort þjóð­kirkjan sé hætt að virða landslög og ákvarðanir stjórn­valda. Vísar hann til þess að í síðustu viku fengu hælis­leitendurnir Ali Nasir og Majed að bíða eftir lögreglu uppi við altari Laugar­neskirkju ásamt vinum sínum og prestum sem veittu þeim andlegan stuðning þar til þeir voru hand­teknir, dregnir út úr kirkjunni og sendir til Noregs. Stundin fjallaði ítarlega um málið og birti myndband af lögreglu­aðgerðinni.

„Er þjóð­kirkjan hætt að virða landslög og ákvarðanir stjórn­valda ? Eiga tilfinningar presta að ráða meiru en landslög. Á hvaða leið erum við ? Þetta er galið,“ skrifaði Helgi Magnús í færslu á Facebook-síðu sinni, sem opin er vinum hans, í síðustu viku. Þá bætti hann við: „Væntanlega eru þessir menn múslímar sem mundu ekki, að öllu jöfnu, láta sjá sig í kristinni kirkju nema í tilvikum sem þessum þar sem það þjónar hagsmunum þeirra.“ Eins og komið hefur fram í fjöl­miðlum tóku Ali og Majed kristna trú skömmu áður en þeim var vísað úr landi.

Helgi fullyrðir að með framgöngu sinni hafi kirkjan ekki virt „löglegar ákvarðanir stjórn­valda byggðar á lögum“ og skrifar: „Þessir prestar telja sig vita betur og eiga að sýna mótstöðu gegn þessari ákvörðun. Þetta eru opinberir embættis­menn sem ættu að mínu viti að fá áminningu í starfi fyrir þetta frumhlaup. Ég geri ekki athugasemd við að fólk lýsi skoðunum sínum eða mæti með potta og pönnur niður í innan­ríkis­ráðuneyti en að koma fram í starfi með þessum hætti í nafni þjóð­kirkjunnar er galið að mínu viti.“

Helgi Magnús Gunnarsson er vara­ríkis­saksóknari. Hér er hann í fylgd ríkis­saksóknara.

Á föstu­daginn brást Helgi Magnús svo við frétt RÚV þar sem rætt var við Huga Hjaltason, prófessor í kirkju­sögu, um kirkju­grið. „Hvaða dómsdags bull er þetta. Eigum við von á að kirkjan fari að boða annan ófögnuð sem fylgi henni á miðöldum eins og galdra­brennur og drekkingar kvenna sem eiga börn utan hjóna­bands? Ef þetta á að verða útbreitt framkvæmd hjá þjóð­kirkjunni með stuðningi biskups eins og í þessu tilfelli þá mega þeir vita að þeir gera það ekki í mínu nafni því ég geng úr þjóð­kirkjunni.:-(“

Kristín Þórunn Tómasdóttir, sóknar­prestur í Laugar­neskirkju, útskýrði nýlega í samtali við Stundina hver tilgangur fram­taksins hefði verið. „Með því að hittast á þessari stundu í kirkjunni vorum við á táknrænan og raun­verulegan hátt að sýna stuðning aðstæðum fólks á flótta - og líka að tjá von um að fornar venjur um kirkju­grið geti reynst tæki til að knýja yfirvöld um breytta stefnu í málefnum hælis­leitenda, hætta færibanda­brott­vísunum fólks sem leitar eftir alþjóðlegri vernd á Íslandi og í staðinn taka ábyrga, efnislega afstöðu í einstökum málum,“ sagði hún og bætti því við að hún teldi brott­vísun fólks sem leitar eftir alþjóðlegri vernd á Íslandi vera ranga, vonda, ábyrgðar­lausa og í engu samræmi við þau gildi sem byggja ætti samfélagið á.

Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðis­flokksins, hefur sakað Kristínu og Toshiki Toma á Facebook um að hafa, með því að hýsa hælis­leitendurna, reynt að koma í veg fyrir að lögregla gæti framfylgt lögum í landinu. Samkvæmt almennum hegningar­lögum varðar það sektum eða fangelsi að tálma því að handhafi lögreglu­valds gegni skyldu­störfum sínum. Á meðal þeirra sem „læka“ færslu Brynjars á Facebook eru Helgi Magnús Gunnarsson og Ólafur Helgi Kjartansson, lögreglu­stjóri á Suðurnesjum.

Kristín Þórunn Tómasdóttir, sóknar­prestur í Laugar­neskirkju, furðaði sig á ásökunum Brynjars Níels­sonar þegar Stundin ræddi við hana fyrr í dag. Hún sagði sig og Toshiki Toma hafa haldið dyrum kirkjunnar opnum fyrir tveimur hælis­leitendum, staðið við hlið þeirra og sýnt þeim stuðning þegar lögreglan kom að sækja þá. Hún skildi ekki í hverju hindrunin á störfum lögreglu gæti mögulega verið fólgin og vísaði ásökunum þing­mannsins til föður­húsanna.

Facebook-hegðun Helga Magnúsar Gunnars­sonar hefur áður vakið athygli og orðið tilefni fjölmiðla­umfjöllunar. Í leka­málinu svokallaða hélt verjandi Gísla Freys Valdórs­sonar, sakbornings í málinu, því fram að hlutlægnis­skylda ákæru­valdsins hefði ekki verið virt við meðferð þess, meðal annars í ljósi þess að Helgi Magnús hefði „lækað“ færslu blaða­manns þar sem gert var gys að blogg­aranum Páli Vilhjálms­syni og skrifum hans um lekamálið. Dómarinn hafnaði þeirri röksemd.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár