Hannes Hólmsteinn: „Því fleiri sjálfstæðisflokkar, því betra“

Hannes Hólmsteinn Gissurarson segir erlendar hugveitur greiða ferða­kostnað þátt­takenda á ráðstefnum eins og þeim sem Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hefur sótt með honum. Hugveita Hannesar hefur tengsl við sama net og hann segist þekkja millj­arða­mær­inginn Charles Koch persónu­lega.

Robert Tyler og Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Robert Tyler og Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son Hannes hefur skrifað fjölda rita fyrir hug­veit­una New Direction, sem Tyler starfar fyrir, en Tyler sótti leyni­fund Sig­mundar Davíðs með Repúblikönum.

Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor emeritus og starfs­maður Rannsóknar­seturs um nýsköpun og hagvöxt, segir hugveitu sína starfa með alþjóð­legu neti hugveitna og stofnana sem Miðflokkurinn tengist nú í auknum mæli.

Ein þeirra er New Direction, hugveita sem tengist ECR, Evrópu­flokki íhalds­manna og umbóta­sinna, sem Miðflokkurinn er nú í aðildar­ferli hjá. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins og fyrr­verandi forsætis­ráðherra, hefur sótt fjölda funda á vegum New Direction og starfs­maður hugveitunnar, Robert Tyler, sat leynifund með honum og fulltrúum frá Repúblikana­flokknum í Gautaborg síðasta sumar.

Hannes segir New Direction greiða ferða­kostnað fyrir þátt­takendur ráðstefna eins og þeirra sem Sigmundur Davíð hefur sótt. Sigmundur Davíð hefur hins vegar engan slíkan kostnað skráð hjá sér í hagsmuna­skráningu þingmanna, þrátt fyrir að siða­reglur Alþingis kveði á um það.

Rannsóknar­setur um nýsköpun og hagvöxt (RNH) er hugveita sem Hannes fer fyrir en ásamt honum hafa Ragnar Árnason og Birgir Þór Runólfsson verið í …

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Magni Hjálmarsson skrifaði
    Er orðið hugveita annað orð yfir áróður eða áróðursbragð? Það hefur líka verið talað um lýðskrum í umfjöllun Heimildarinnar um Miðflokkinn. Að þeir hafi verið að læra þá "list" á sérstökum námskeiðum í útlöndum. Er ekki hægt að komast að hinu sanna um þetta mál til að upplýsa íslenska kjósendur um hvaða vinnuaðferð flokkurinn notar við að afla sér fylgis?
    0
  • Sveinn Ingólfsson skrifaði
    Hvernig er hægt að losna við svona mann eins og Hannes úr stjórnmálaumræðunni? Hans sjónarmið eru öll í þá átt að styðja auðvaldið og menn sem vilja sem mest græða á alþýðunni sem stritar til að komast af á tímum himinhárra vaxa og matvælaverðs. Stjórnun Sjálftökuflokksins á fjármálum landsinns undanfarna áratugi hefur verið hrein hörmung enda sumir þar (alls ekki allir) sem gera allt til að græða sem mest. Mér sýnist að Ari sé einn af þeim.
    Bankahrunið var bein afleiðing af fjálshyggjunni. Á því er enginn vafi. Þetta vilja menn eins og Hannes og þeir sem hann styður endurtaka. Ég aðhyllist norræna velferðakerfið. Ekki amerríska kerfið sem gerir ríka ríkari og fátæka fátækari. Mér sýnist Hannes og hans skoðabræður vilja kona á ameríska kerfið á Íslandi. .
    0
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Áhugavert viðtal. Ekki að undra að SDG hafi brugðist ókvæða við, og ekkert munað hverja hann hitti, ef rétt er, að ESB fjármagni að verulegu leyti fundarkostnað þessara samtaka.
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

MAGA-tengingar Miðflokksins

GreiningMAGA-tengingar Miðflokksins

„Þvættingur“ og „tóm steypa“ nú sögð eðlileg tengsl við erlenda flokka og hugveitur

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, sagði umfjöllun Heim­ild­ar­innar um tengsl flokksins við MAGA-hreyfinguna „full­kominn þvætting“ en staðfesti fund sinn með Repúblikönum í Gautaborg. Aðrir flokks­menn hafa nú sagt frá tengslum við ECR-flokkinn og Heritage Foundation en eftir standa spurningar um hver borgaði.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár