„Það er verið að hvetja til ofneyslu“

Arion banki auglýsir sérstak­lega greiðslu­dreifingu kredit­korta þar sem viðskipta­vinir eru hvattir til að „dreifa jólunum á fleiri mánuði“. Formaður Neytenda­samtakanna varar við „kaupa núna, borga seinna“ hugarfari, þrátt fyrir að fólk vilji gera vel við sig um jólin.

Breki Karlsson
Breki Karlsson Formaður Neyt­enda­sam­tak­anna varar við greiðslu­dreif­ingu og öðrum mögu­leikum sem lán­töku sem hvetja til ofneyslu. Mynd: Golli

Formaður Neytenda­samtakanna segir að hvatt sé til ofneyslu á tímum þar sem fólk eigi erfitt með að láta enda ná saman. Jólin séu sérstak­lega hættuleg hvað þetta varðar.

Arion banki auglýsir nú sérstak­lega greiðslu­dreifingu kredit­korta í tilefni af jólunum. „Dreifðu jólunum á fleiri mánuði“ er fyrirsögn á vefsíðu bankans. „Greiðslu­dreifing kredit­korta getur verið hentug leið til að mæta tíma­bundnum sveiflum í útgjöldum.“

Bankinn býður upp á greiðslu­dreifingu til 18 mánaða. Lágmarks­upphæð er 30 þúsund krónur, greiða þarf 10% af heildar­upphæð reikningsins en viðskipta­vinur getur verið með allt að 10 slíkar dreifingar í gangi í einu.

Samkvæmt verðskrá bankans er stofn­gjald greiðslu­dreifingar 390 krónur, færslu­gjald 220 krónur, mánaðar­gjald 1.195 krónur og breytinga­gjald 895 krónur. Þá eru ótaldir vextir sem nema 15% samkvæmt vaxta­töflu Arion banka.

„Við gjöldum varhug við þessu,“ segir Breki Karlsson, formaður Neytenda­samtakanna, um auglýsingu Arion banka og sambærileg …

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár