Saknar þess að utanríkisráðherra hafi ekki haft samband við stjórnvöld í Namibíu

Þingmaður Vinstri grænna segir það vera gríðar­lega mikilvægt að Íslendingar standi við skuld­bindingar sínar og auki hlutfall af þjóðar­framleiðslu til þróunar­samvinnu og tryggi að þeir fjármunir renni í áhrifa­mikla þróunar­samvinnu.

Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingmaður VG.
Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, þing­maður VG. Mynd: Bára Huld Beck

„Svo verð ég að játa að ég sakna þess að utan­ríkis­ráðherra hafi ekki haft samband við stjórn­völd í Namibíu til að árétta okkar skuld­bindingar í eftir­fylgni með þróunar­samvinnu­verkefnum okkar þar sem lauk 2010, en líka samband við Malaví, Úganda, Afganistan og Palestínu. Til að engum dyljist að Ísland vilji halda áfram að sinna af einurð faglegri og kraft­mikilli þróunar­samvinnu sem hefur gott orð á sér og hefur haft gríðarleg áhrif á líf venjulegs fólks og möguleika þess til að byggja sér og sínum góða framtíð.“

Þetta segir Rósa Björk Brynjólfs­dóttir, þingmaður Vinstri grænna, í stöðu­uppfærslu á Facebook í dag.

Þing­maðurinn hitti Catherine Gotani Hara, fyrsta kven­forseta þingsins í Malaví, síðastliðinn fimmtudag en hún heimsótti Alþingi ásamt föruneyti, skoðaði Alþingis­húsið og átti fund með Steingrími J. Sigfús­syni, forseta Alþingis, og hitti síðan utan­ríkismála­nefnd að máli.

Í færslu sinni á Facebook segir Rósa Björk að Hara hafi lýst á fundi þeirra styrk­leikum og veik­leikum samfélagsins í Malaví af mikilli þekkingu og yfirsýn og hvernig þróunar­samvinnu­verkefni Íslands þar í landi hafi breytt lífi fólks til hins betra.

Mikilvægt að Íslendingar standi við skuldbindingar sínar

„Samstarfs­lönd Íslands í þróunar­samvinnu eru Malaví og Úganda og áherslu­lönd Íslands í þróunar­samvinnu eru Afganistan, Mósambík og Palestína. Síðan erum við í svokölluðu svæða­samstarfi í Austur-Afríku í fiskimálum og málefnum hafsins og í Vestur-Afríku að endurnýjanlegri orku með áherslu á jarðhita,“ skrifar Rósa Björk.

Hún segir það vera gríðar­lega mikilvægt að Íslendingar standi við skuld­bindingar sínar og auki hlutfall af þjóðar­framleiðslu til þróunar­samvinnu og tryggi að þeir fjármunir renni í áhrifa­mikla þróunar­samvinnu en ekki í verkefni hér heima sem eigi að fá peninga annars staðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hluthafar Samherja taka út milljarð í arð eftir uppskiptingu félagsins

Verulegar breytingar voru gerðar á uppbyggingu útgerðar­risans Samherja í fyrra þegar fjár­festingar­starfsemin var aðskilin frá útgerðar­rekstri með stofnun eignarhalds­félagsins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eigendur Samherja ætli sér einnig að færa útgerðar­félagið inn í eignarhalds­félagið Látra­fjöll en skattalegar ástæður geta legið þar að baki.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár