Íhaldsflokkur Boris Johnson í lykilstöðu samkvæmt útgönguspá

Brexit er líklegt til að verða að veruleika strax í janúar, gangi útgöngu­spár eftir í Bretlandi, en kjör­staðir lokuðu klukkan 22:00.

Boris Johnson, forsætis­ráðherra Bretlands, er sigurvegari þing­kosninga í Bretlandi, samkvæmt útgöngu­spám, sem birtar voru þegar kjör­staðir lokuðu klukkan 22:00.

Íhalds­flokkur hans er með rúman meirihluta, 86 sæti í það heila, og mun hafa möguleika á því að framkvæma Brexit fljótt og örugglega, strax í janúar. Samkvæmt útgönguspá gæti Íhalds­flokkurinn fengið 368 þingsæti, en kosið er um 650 þingsæti.

Verkamanna­flokkur Jeremy Corbyn fær verstu niður­stöðu í áratugi, samkvæmt umfjöllun BBC, og svo virðist sem hann hafði engan veginn náð að marka sér stöðu í hörðum rökræðum í Bretlandi, þar sem Brexit hefur verið stórt ágreiningsmál allt frá þjóðar­atkvæða­greiðslunni sumarið 2016.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár