9 af hverjum 10 sögðu já við sjálfstæði Katalóníu

Í yfir­lýsingu frá stjórn­völdum í Katalóníu kemur fram að yfir­gnæfandi meirihluti þeirra sem kusu hafi kosið með sjálf­stæði.

Um 90% af þeim 2,26 millj­ón­um Katalóna sem kusu um sjálf­stæði sjálf­stjórn­ar­héraðsins,á átaka­fullum degi þar sem spænska lögreglan beitti ofbeldi og harðræði, sögðu já.

Í yfir­lýsingu frá stjórn­völdum í Katalónínu er þetta sögð niður­staða kosningarinnar, en spænska lögreglan reyndi að loka kjör­stöðum vítt og breitt, og beitti kylfum og harðræði. Yfir 800 manns slösuðust í átökum við lögreglu, samkvæmt fréttum breska ríkis­útvarpsins BBC.

Jordi Turull, talsmaður sjálf­stjórn­ar­héraðsins, sagði að kosninga­þátttaka hefði verið 42,3 prósent, sem var meira en búist var við, vegna boðaðra aðgerða lögreglu.

Stjórn­völd í Madríd hafa afneitað kosningunni, og vísa máli sínu til stuðning í dóms­niðurstöðu hæstaréttar Spánar.

Car­les Puig­demont, forseti Katalóníu, sagði að nú væru málin í höndum Katalóníu, í Barcelona, sem hefðu árlögin í höndum sér. Sjálfstætt ríki Katalóníu væri það sem fólkið vildi.

Puig­demont hef­ur þegar lýst því yfir að hann sé ánægður með niður­stöðuna, en nefndi einnig að Evrópu­sambandið gæti ekki „litið undan“. Það yrði að taka mark á niður­stöðunni og vilja fólksins.

Meira en 40 stéttar­félög og hagsmuna­samtök starfs­fólks hafa boðað verkfall á þriðjudaginn til að mótmæla ofbeldi lögreglu á kjördegi. Eru aðgerðirnar sagðar skammarlegar og smánar­blettur í sögu Spánar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár