Orban með öruggan sigur

Orban hefur talað alfarið gegn meiri Evrópu­samvinnu, innflytj­endum og flótta­fólki, sem hann vill ekki sjá í Ungverja­landi.

Flokkur Viktors Orbans, forsætis­ráðherra Ungverja­lands, fékk flest atkvæði í kosningunum í landinu í gær, og var með tæplega 50 prósent fylgi þegar búið var að telja 93 prósent atkvæða.

Kjörsókn var 69 prósent, en Orban hefur talað fyrir því að Ungverja­land verji sín gildi fyrir innflytjendaum og Evrópu­sambandinu. Hann talaði eindregið gegn nánari Evrópu­samvinnu á loka­metrum kosninga­baráttunnar og líkti flótta­fólki og innflytjendum við sníkjudýr, sem ættu ekki að vera velkomin í ungverska menninga.

Í Ungverja­landi búa tæplega 10 milljónir manna, en þrátt fyrir harðlínustefnu sína gagnvart innflytjendum og flótta­fólki - sem hann hefur lokað á - þá er enginn stjórn­málamaður í Ungverja­landi nærri því að ógna stöðu hans á hinu pólitíska sviði.

Þetta verður fjórða kjör­tímabil hans við völd, sem senn er að hefjast. Orban er 54 ára og hefur verið leiðtogi hægri íhalds­manna í Ungverja­landi, og hefur beitt sér fyrir stefnu­breytingu innan flokksins, en á árum áður aðhylltist hann meiri samvinnu við Evrópu­sambandið og önnur ríki, en Orban hefur umbreytt flokknum í þjóðernis­sinnaðan flokk.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár