Verslunarmenn og Starfsgreinasambandið ætla saman í kjaraviðræðurnar

Lands­samband íslenzkra verzlunarmanna og Starfs­greina­samband Íslands ætla að „taka höndum saman“ í viðræðum sínum við Samtök atvinnu­lífsins um nýjan kjara­samning. Hátt í 90 þúsund manns á almennum vinnu­markaði eru innan lands­sambandanna tveggja.

Ragnar Þór Ingólfsson er formaður LÍV og Vilhjálmur Birgisson er formaður SGS.
Ragnar Þór Ing­ólfs­son er for­maður LÍV og Vil­hjálmur Birg­is­son er for­maður SGS. Mynd: Samsett mynd

Lands­samband íslenzkra verzlunarmanna (LÍV) og Starfs­greina­sambands Íslands (SGS) hafa ákveðið að taka höndum saman í viðræðum við Samtök atvinnu­lífsins um nýjan kjara­samning á almennum vinnu­markaði.

Í samhljóða tilkynningum lands­samtakanna tveggja segir að ljóst sé að samstarf LÍV og SGS muni „skila auknum slag­krafti í kjara­samnings­viðræðurnar“ en lands­samtökin eru leidd af þeim Ragnari Þór Ingólfs­syni formanni VR og Vilhjálmi Birgis­syni formanni Verkalýðs­félags Akraness.

Um er að ræða þau tvö stærstu af alls fimm lands­samtökum launa­fólks á almennum vinnu­markaði og nær samstarfið til hátt í 90 þúsund einstaklinga sem starfa á almennum vinnu­markaði innan alls tuttugu stéttar­félaga.

„Mjög ríkur vilji er innan beggja sambanda að gera sameiginlega atlögu að nýjum kjara­samningi þar sem áherslan verður á að auka kaupmátt og tryggja stöðug­leika í efnahags­lífinu,“ segir í tilkynningunni frá LÍV og SGS.

Ragnar Þór kallaði þetta „ofurbandalag“ árið 2018

Hugmyndir voru uppi um samflot LÍV og SGS fyrir kjara­viðræðna­lotuna sem endaði með gerð lífs­kjara­samningsins árið 2019. Ragnar Þór viðraði hugmyndina þá í færslu á Facebook og kallaði slíkt samstarf „ofur­bandalag“.

Af „ofur­bandalaginu“ í þeirri mynd varð hins vegar ekki og æxluðust málin meira að segja að lokum svo að VR, sem er lang­stærsta stéttar­félagið innan LÍV, var ekki í samfloti með hinum tíu félögunum innan LÍV í viðræðum við Samtök atvinnu­lífsins.

Hins vegar má segja að ákveðinn vísir að því samstarfi sem nú hefur raungerst hafi orðið að veruleika þá þegar, enda fóru VR, Efling og Verkalýðs­félag Akraness í samflot í kjara­viðræðum sínum við Samtök atvinnu­lífsins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár