Sér fram á verulegar hækkanir verðtryggðra skulda vegna árásanna

Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfs­greina­sambandsins, spyr hvort stjórn­völd ætli að bregðast við áður en snar­hækkandi olíuverð leiði til tugmilljarða hækkana á höfuðstól verð­tryggðra skulda íslenskra heimila. Forstjóri Skeljungs segir ástandið munu hafa „gríðarlegar afleiðingar“ því það sé „vandfundin sú vara sem ekki er annaðhvort framleidd eða flutt með olíu.“

Stig­magnandi átök eftir árás Banda­ríkjanna og Ísraels á Íran hafa á örfáum dögum valdið miklum sviptingum á alþjóð­legum orku­mörkuðum. Olíu- og gasverð hefur hækkað hratt, flutnings­leiðir raskast og hlutabréfa­markaðir víða um heim hafa lækkað.

Þótt bein áhrif hér á landi séu enn takmörkuð eru vísbendingar um að þróunin geti haft víðtæk áhrif á verðlag og skuldir íslenskra heimila.

„Á meðan heimurinn fylgist með stig­magnandi átökum í Miðausturlöndum sitja íslensk heimili uppi með afleiðingarnar – í formi hækkandi skulda,“ skrifar Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfs­greina­sambands Íslands, á Facebook.

Hann bendir á að hækkandi olíuverð leiði til hærri flutnings­kostnaðar og aðföng hækki í verði sem smitist út í verðlag. Þegar neyslu­vísitalan hækki hækki verð­tryggðar skuldir sjálf­krafa. 

Alþjóðlegir markaðir bregðast hart við

Á það sama benti Þórður Guðjónsson forstjóri Skeljungs á í samtali við Vísi, þar sem hann sagði að málið snérist um meira en bensín­verð á …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár