Bandaríkin opnast og ferðagleði grípur um sig

Icelandair flýgur til níu áfanga­staða í Banda­ríkjunum og stefnir á fleiri. Flug­félagið hefur ekki farið varhluta af auknum áhuga á ferða­lögum þangað enda verða landa­mærin opnuð fyrir bólu­settum á næstu dögum. Faraldurinn er sem fyrr stóri óvissu­þátturinn.

Hún er þarna enn, Frelsisstyttan.
Hún er þarna enn, Frels­is­styttan. Mynd: EPA

Um leið og bandarísk stjórn­völd tilkynntu að landa­mærin yrðu opnuð fyrir bólu­settum ferða­mönnum frá og með 8. nóvember varð sprenging í fyrir­spurnum til ferða­skrifstofa og í gegnum leitar­vélar á netinu. Bókunum í gegnum Skyscanner, sem er ein vinsælasta síða veraldar þegar kemur að því að leita að flug­ferðum, fjölgaði um 800 prósent samdægurs og 28 prósent aukning varð í leit að gistingu í Banda­ríkjunum í gegnum vef Expedia.

Icelandair hefur ekki farið varhluta af þessum endur­vakta áhuga á ferðum til Banda­ríkjanna, bæði frá Íslendingum sem og öðrum Evrópu­búum og samkvæmt upplýsingum frá flug­félaginu hafa bókanir þangað þegar aukist.

Þeir hafa verið margir og langir mánuðirnir sem fólk hefur almennt ekki getað ferðast til Banda­ríkjanna. Þótt ferða­langa þyrsti augljós­lega marga í að komast þangað eru það ekki síst ástvinir sem hafa verið aðskildir vegna faraldursins sem eru hvað fegnastir.

Tíðindin af opnun landa­mæranna höfðu einnig áhrif á ferða­vilja Bandaríkja­manna sjálfra – bæði innanlands og utan. Þakkar­gjörðar­hátíðin er á næsta leyti og jólin svo handan við hornið. Bjartsýni hefur aukist og fólk mun viljugra að ferðast eftir að stjórn­völd ákváðu að opna landa­mærin fyrir bólu­settum. Ákvörðuninni er tekið sem ákveðnum skila­boðum um að óhætt sé að ferðast – að faraldurinn hafi minni áhrif á ferðalög nú en síðustu mánuði.

Í svörum Icelandair við fyrir­spurn Kjarnans segir að eftir­spurn Bandaríkja­manna hingað til lands hafi verið sterk og að þeir stór hluti ferða­manna sem hingað hafa komið síðustu mánuði. Fréttir á borð við opnun landamæra hafi yfirleitt jákvæð áhrif í báðar áttir og þannig finni flug­félagið fyrir auknum áhuga á ferða­lögum almennt. „Eftir áttunda nóvember verður opið á milli allra okkar markaðs­svæða og það skapar aukið jafnvægi í starfseminni okkar og opnar á ný tækifæri,” segir í svari Icelandair.

Icelandair flýgur nú til níu áfanga­staða í Banda­ríkjunum en stefnir á að þeir verði orðnir fjórtán næsta sumar.

Búðu þig undir einhverjar tafir

Þótt flugvélar margra flug­félaga séu að hefja sig til flugs þá er hins vegar nokkuð víst að ferða­þjónustan og veitinga­geirinn í Banda­ríkjunum mun mögulega hökta að einhverju leyti – að minnsta kosti fyrst í stað. Uppsagnir hafa verið í þessum greinum, líkt og annars staðar í heiminum, og aðeins nokkra vikna fyrirvari var gefinn á opnun landa­mæranna. Að manna öll störf mun taka tíma.

Hins vegar segjast yfirvöld tilbúin að taka á móti fjölda fólks á flug­völlunum og að skoðun skilríkja, bólu­setningar­vottorða meðal annars, eigi að ganga nokkuð snurðu­laust fyrir sig. Það má þó vissulega búast við töfum frá því sem var fyrir heims­faraldurinn.

Í frétta­skýringu New York Times um ferðalög á þessum óvissu­tímum segja ferða­þjónustu­aðilar einmitt að búast þurfi við hinu óvænta. Og að flestir eigi orðið von á því að eitthvað komi upp á. Þess vegna sé mælt með því að skipuleggja ferðalög vel, bóka gistingu tímanlega og flug sömuleiðis. Krossa svo fingur og búast við hinu besta. Sumir ferðamenn vilja hins vegar gera þveröfugt, bóka með stuttum fyrirvara þegar óvissan í kringum ferða­lagið er minni.

Þessi bið gæti þó kostað sitt. Verð eru þegar farin að hækka og sum hótel á vinsælustu ferðamanna­stöðunum eru til að mynda strax orðin fullbókuð yfir hátíðirnar. Verð á innan­landsflugi í Banda­ríkjunum fer einnig hækkandi og samkvæmt ferða­appinu Hopper er það að nálgast það að vera á pari við það sem þekktist í kringum jólin árið 2019. Milli­landaflug er þó enn ódýrara sem kann þó að breytast með aukinni eftir­spurn er nær dregur desember.

Stefna á sífellt meira framboð

Icelandair segir að nú á fjórða ársfjórðungi 2021 sé gert ráð fyrir að flug­framboðið hjá flug­félaginu verði um 65 prósent af því sem það var árið 2019 sem var síðasta heila rekstrar­árið áður en faraldurinn skall á. „Hins vegar stefnum við á að ná upp í 80 prósent af framboði þess árs næsta vor.“

Stóri óvissu­þátturinn í ferða­lögum nútímans er auðvitað þróun faraldursins. Hvort að smitum fari að fjölga á ný, ýmist í því landi sem fólk er að ferðast frá eða í Banda­ríkjunum, eða hvort hlutirnir haldist í svipuðu horfi og þá sóttvarna­aðgerðir sömuleiðis.

Nýjasta smit­bylgjan skall á Banda­ríkjunum í ágúst og hefur verið á stöðugri niðurleið síðustu vikur. Smittölur eru þó enn töluvert hærri en þær voru snemma í sumar. Stærsta bylgjan sem gekk yfir landið hófst í byrjun nóvember í fyrra og gekk ekki niður fyrr en í byrjun febrúar. Um 75 þúsund manns hafa greinst með veiruna daglega að meðaltali síðustu vikuna. Bólu­setningar ganga ágætlega og eru nú tæplega 60 prósent Bandaríkja­manna full bólusett og yfir 70 prósent 12 ára og eldri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár